Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2932. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Ármann Kristinn Ólafsson

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Óskað eftir viðræðum við Kópavogsbæ varðandi samstarf um uppbyggingu almennra íbúða

Að beiðni bæjarráðs mætir Björn Traustason framkvæmdastjóri hjá Bjargi íbúðafélagi á fund ráðsins til að kynna betur erindi sem félagið sendi og var tekið fyrir á síðasta fundi bæjarráðs þar sem óskað var eftir viðræðum við Kópavogsbæ um lóð og stofnframlag vegna byggingar almennra íbúða í sveitarfélaginu.

Lagt fram.

02

Fjárhagsáætlun 2019

Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar og stofnana fyrir árið 2019 og drög að þriggja ára fjárhagsáætlun 2020-2022.

Bæjarráð vísar tillögu að fjárhagsáætlun 2019 og tillögu að þriggja ára áætlun 2020-2022 til bæjarstjórnar til fyrri umræðu með fimm atkvæðum.

03

Persónuverndarsamþykkt Kópavogs

Frá bæjarritara, lögð fram til samþykktar Persónuverndarsamþykkt Kópavogsbæjar.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

04

Furugrund 3, kæra vegna beiðni hafnað um breytingu á húsnæði.

Frá lögfræðideild, dags. 26. október, lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 139/2013 þar sem kærð var ákvörðun bæjarstjórnar um að hafna breytingu á húsnæði að Furugrund 3 í íbúðahótel.

Lagt fram.

05

Kópavogstún 9, Beiðni um undanþágu frá kvöð um aldur vegna sölu íbúðar

Frá lögfræðideild, dags. 23. október, lagt fram erindi vegna beiðni kaupenda að íbúð við Kópavogstún 9 um undanþágu frá kvöð um 60 ára og eldri vegna sölu eignarinnar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi sínum þann 25. október.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita umbeðna undanþágu.

06

Geymslu- og athafnasvæði, umsókn um lóð.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 24. október, lögð fram umsókn Vatnsborunar ehf. um lóð fyrir geymslu og athafnasvæði. Lagt er til að erindinu verði hafnað.

Bæjarráð hafnar erindinu með fimm atkvæðum.

07

Útboð - Kársnesskóli hönnun

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 29. október, lögð fram niðurstöður útboðs á hönnun. Lagt er til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Mannvit verkfræðistofu hf. (samstarfsaðilar Batteríið og Landslag) um verkið, "Kársnesskóli Kópavogir nýbygging - hönnun".

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarlögmanns.

08

Umsókn um launað námsleyfi á vorönn 2019

Frá starfsmannadeild, dags. 23. október, lögð fram beiðni Maríu Kristjánsdóttur um launað námsleyfi og lagt til að umsókninni verði synjað þar sem ekki er um að ræða nám sem fellur undir 9. gr. reglna Kópavogsbæjar um launuð námsleyfi.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

09

Umsókn um launað námsleyfi veturinn 2019-2020

Frá starfsmannadeild, dags. 18. október, lögð fram beiðni Hrannar Valentínusardóttur um launað námsleyfi og lagt til að umsókn um launað námsleyfi á árinu 2019 verði synjað þar sem umsókn hennar er of seint fram komin og þeim hluta umsóknarinnar er snýr að árinu 2020 verði vísað frá.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar

10

Umsókn um launað námsleyfi

Frá starfsmannadeild, dags. 17. október, lögð fram beiðni Guðrúnar Saengduan Udomyart um launað námsleyfi og lagt til að umsókninni verði synjað þar sem umsókn hennar er of seint fram komin.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar

11

Sótt um námsleyfi

Frá starfsmannadeild, dags. 18. október, lögð fram beiðni Smára Magnúsar Smárasonra um launað námsleyfi og lagt til að honum verði veitt launað námsleyfi í 4 mánuði á árinu 2019 gegn því skilyrði að hann vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar

12

Umsókn um launað námsleyfi

Frá starfsmannadeild, dags. 17. október, lögð fram beiðni Sonju Margrétar Halldórsdóttur um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í þrjá mánuði á árinu 2019 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar

13

Umsókn um námsleyfi 2019 - 2020

Frá starfsmannadeild, dags. 17. október, lögð fram beiðni Margrétar Hlínar Sigurðardóttur um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í fjóra mánuði á árinu 2019 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar

14

Sótt um launað námsleyfi skólaárið 2018-2019

Frá starfsmannadeild, dags. 17. október, lögð fram beiðni Líneyjar Óladóttur um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í þrjá mánuði á árinu 2019 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma og að unnt verði að haga launaða námsleyfinu á þann hátt að ekki þurfi afleysingu.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar

15

Sótt um launað námsleyfi veturinn 2019 - 2019

Frá starfsmannadeild, dags. 23. október, lögð fram beiðni Ingibjargar Ásdísar Sveinsdóttur um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í fjóra mánuði á árinu 2019 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

16

Umsókn um launað námsleyfi frá 01.01.-01.04.2019

Frá starfsmannadeild, dags. 23. október, lögð fram beiðni Huldu Kristínar Sigmundsdóttir um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í þrjá mánuði á árinu 2019 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar

17

Umsókn um launað námsleyfi 2019 - 2020

Frá starfsmannadeild, dags. 17. október, lögð fram beiðni Heiðbjartar Gunnólfsdóttur um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í fjóra mánuði á árinu 2019 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

18

Sótt um launað námsleyfi veturinn 2019 - 2020

Frá starfsmannadeild, dags. 17. október, lögð fram beiðni Guðbjargar Sóleyjar Þorgeirsdóttur um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í þrjá mánuði á árinu 2019 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

19

Sótt um launað námsleyfi fyrir tímabilið 1. sept. 2019 - 1. júní 2020

Frá starfsmannadeild, dags. 17. október, lögð fram beiðni Bjarkar Berglindar Angantýsdóttur um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í fjóra mánuði á árinu 2019 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

20

Sótt um launað námsleyfi fyrir árið 2019

Frá starfsmannadeild, dags. 17. október, lögð fram beiðni Önnu Rósar Sigurjónsdóttur um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í níu mánuði á árinu 2019 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

21

Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. til samþykktar

Frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, dags. 25. október, lögð fram til samþykktar gjaldskrá slökkviliðsins sem var samþykkt af stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á fundi þann 19. október sl. og vísað til afgreiðslu aðildarsveitarfélaganna.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

22

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna afnáms um uppreist æru, 222. mál. Umsagnarbeiðni

Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 25. október, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsu lögum vegna afnáms uppreist æru, 222. mál.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

23

Frumvarp til laga um skráningu og mat fasteigna (ákvörðun matsverðs), 212. mál. Umsagnarbeiðni

Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 25. október, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um skráningu og mat fasteigna (ákvörðun matsverðs), 212 mál.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

24

Tillaga til þingsályktunar um mótun eigendastefnu ríkisins með sérstöku tilliti til bújarða, 20. mál. Umsagnarbeiðni

Frá atvinnuveganefnd Alþingis, dags. 29. október, lögð fram tillaga til þingsályktunar um mótun eigendastefnu ríkisins með sérstöku tilliti til bújarða, 20 mál.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

25

Fundargerð 176. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 19.10.2018

Fundargerð í 9. liðum.

Lagt fram.

26

Fundargerð 15. eigendafundar Sorpu bs. frá 22.10.2018

Fundarerð í 3. liðum.

Lagt fram

27

Fundargerð 397. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 17.10.2018

Fundargerð í 6. liðum.

Lagt fram.

28

Fundargerð 398. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 24.10.2018

Fundargerð í 4. liðum.

Lagt fram

29

Skipulagsráð - 37. fundur frá 29.10.2018

Fundargerð í 3 liðum.

Lagt fram.

30

Notkun einnota plastpoka hjá stofnunum Kópavogsbæjar

Tillaga frá Pétri Hrafni Sigurðssyni, um notkun einnota plastpoka hjá stofnunum Kópavogsbæjar.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.