Til baka í fundargerðir
Fellahvarf 24, Steinakúnst ehf. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi
Málsnúmer: 1811141
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2936. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 23. nóvember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 6. nóvember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Steinakúnstar ehf. um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, að Fellahvarfi 24, 203 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð veitir neikvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar með fimm atkvæðum.