Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Marbakkabraut 9. Óskað eftir lækkun gatnagerðagjalda og dreifingu greiðslna án viðbótarkostnaðar

Málsnúmer: 1811485

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1188. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 4. desember, lögð fram umsögn um beiðni lóðarhafa Marbakkabrautar 9 um lækkun á gatnagerðargjöldum og dreifingu greiðslna án viðbótarkostnaðar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi sínum þann 6. desember sl.

02

Bæjarstjórn samþykkir erindi lóðarhafa Marbakkabrautar 9 um lækkun á gatnagerðargjöldum með fimm atkvæðum þeirra Péturs Hrafns Sigurðssonar, Bergljótar Kristinsdóttur, Theódóru Þorsteinsdóttur, Einars Arnar Þorvarðarsonar og Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur gegn atkvæðum þeirra Karenar Halldórsdóttur, Hjördísar Johnson, Guðmundar Geirdal og Birkis Jóns Jónssonar. Ármann Kr. Ólafsson og Margrét Friðriksdóttir greiddu ekki atkvæði.

Karen Elísabet Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Gísli Geirdal og Birkir Jón Jónsson lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Það er mikilvægt að bæjarfulltrúar gæti jafnræðis í öllum málum og fram að þessu hefur beiðnum sem þessum verið hafnað.

Karen Elísabet Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Gísli Geirdal, Birkir Jón Jónsson"

03

Bæjarráð - 2942. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 4. desember, lögð fram umsögn um beiðni lóðarhafa Marbakkabrautar 9 um lækkun á gatnagerðargjöldum og dreifingu greiðslna án viðbótarkostnaðar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi sínum þann 6. desember sl.

Hlé var gert á fundi kl. 10.03. Fundi var fram haldið kl. 10.04.

Bæjarráð hafnar erindi lóðarhafa Marbakkabrautar 9 um lækkun á gatnagerðargjöldum með þremur atkvæðum gegn tveimur. Birkir Jón Jónsson, Karen Halldórsdóttir og Hjördís Ýr Johnson greiddu atkvæði gegn erindinu en Pétur Hrafn Sigurðsson og Theódóra Þorsteinsdóttir greiddu atkvæði með samþykkt þess.

Bæjarráð hafnar erindi um dreifingu greiðslna án viðbótarkostnaðar með fimm atkvæðum.

04

Bæjarráð - 2937. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 4. desember, lögð fram umsögn um beiðni lóðarhafa Marbakkabrautar 9 um lækkun á gatnagerðargjöldum og dreifingu greiðslna án viðbótarkostnaðar.

Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins.

05

Bæjarráð - 2935. fundur

Frá lóðarhöfum Marbakkabrautar 9, dags. 13. nóvember, lagt fram erindi um lækkun gatnagerðargjalda vegna nýbyggingar sem kemur í stað eldri húss sem hefur verið rifið.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.