Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Smáratorg 1, Læknavaktin. Sviðslistahópurinn 16 elskendur. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi

Málsnúmer: 1811582

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2936. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 23. nóvember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 21. nóvember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Sviðslistahópsins 16 Elskendur, kt. 570708-0150, um tækifærisleyfi vegna leiksýningar dagana 8-14. desember, frá klukkan 20:00-22:00, í Læknavaktinni að Smáratorgi 1, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/20017 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.