Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga um aukið aðgengi að upplýsingum frá Pírötum.

Málsnúmer: 1811661

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2936. fundur

Frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur bæjafulltrúa, tillaga um aukið aðgengi að upplýsingum sem felur að á vef bæjarins megi nálgast yfirlit yfir þau mál sem bæjarfulltrúar hafa lagt fram og eru til afgreiðslu inn í stjórnsýslunni. Þetta felur ekki endilega í sér birtingu gagna umfram það sem kemur fram í fundargerðum nú þegar, heldur snýr fyrst og fremst að því að þau séu aðgengileg á einum stað svo auðveldlega megi sjá hvaða mál eru í ferli og hvar þau eru stödd í kerfinu. Vönduð meðferð og miðlun upplýsinga eru afar mikilvægir þættir í starfsemi sveitarfélaga og með þessu móti eykst gagnsæi og skilvirkni í stjórnsýslunni.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til úrvinnslu.