Ljóðstafur Jóns úr vör, dagskrá
Málsnúmer: 1812135
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 134. fundur
Drög að reglum samþykkt með áorðnum breytingum.
Lista- og menningarráð samþykkir reglur um Ljóðstaf Jóns úr Vör.
02
Lista- og menningarráð - 126. fundur
Dagskrá Ljóðahátíðar Jóns úr Vör 2021.
Elísabet Indra Ragnarsdóttir verkefna- og viðburðastjóri menningarmála kemur á fundinn kl. 17 og kynnir hugmyndir að Ljóðahátíð Jóns úr Vör á 20 ára afmæli hátíðarinnar í janúar 2022. Lista- og menningarráð fagnar dagskrá afmælishátíðarinnar og samþykkir heildarkostnað við hátíðina. Verðlaunafé helst óbreytt. Ráðið felur verkefnastjóra að hrinda dagskránni úr vör ásamt því að móta reglur um skipan og störf dómnefndar.
Elísabet Indra yfirgefur fundinn kl. 17:15.
03
Lista- og menningarráð - 123. fundur
Umræður um Ljóðstaf Jóns úr Vör 2022.
Elísabet Indra Ragnarsdóttir er gestur þessa dagskrárliðar frá 18:15-18:45.
Í tilefni af 20 ára afmæli Ljóðstafs Jóns úr Vör árið 2022 vill lista- og menningarráð halda sérstaklega upp á þau tímamót. Starfsfólki menningarmála verði falið að móta tillögur í þeim anda og leggja fyrir ráðið. Enn fremur er starfsmönnum falið að skerpa á reglum keppninnar og skipan dómnefndar.
04
Lista- og menningarráð - 96. fundur
Dagskrárdrög og tillaga að nýrri heimasíðu.
Að mati lista- og menningarráðs býður vönduð, metnaðarfull og fjölbreytt dagskrá bæjarbúa og annarra gesta í ljóðavikunni sem hefst viku áður en afhending Ljóðstafs Jóns úr Vör verður gerð 20. janúar.