Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vallakór 12-14, Íþróttahús Kórsins, HK. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi

Málsnúmer: 1812205

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2940. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 17. desember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 4. desember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Handknattleiksfélags Kópavogs, kt. 630981-0269, um tímabundið áfengisleyfi vegna þorrablóts Kópavogs(Kópavogsblót) sem verður haldið þann 25. janúar frá kl. 19:00-03:00, í Kórnum, að Vallakór 12-14, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.