Menntasvið-útboð ræstingar í leikskólum 2019
Málsnúmer: 1902079
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2962. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 12. júní, lagðar fram niðurstöður útboðs í verkið "Ræstingarþjónusta fyrir leikskóla Kópavogsbæjar". Lagt er til við bæjarráð að menntasviði verði heimilað að leita samninga við lægstbjóðendur Daga hf. og Sólar ehf. í samræmi við framlagða niðurstöðu.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að heimila menntasviði að leita samninga við lægstbjóðendur Daga hf. og Sólar ehf. Theódóra Þorsteinsdóttir greiddi ekki atkvæði.
02
Bæjarráð - 2945. fundur
Frá sviðsstjóra og rekstrarstjóra menntasviðs, dags. 4. febrúar, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til þess að bjóða út ræstingarþjónustu í 15 leikskólum bæjarins og heimild til þess að semja við Ríkiskaup um framkvæmd útboðs fyrir hönd Kópavogsbæjar skv. fyrirliggjandi tilboði.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum heimild til útboðs á ræstingarþjónustu í 15 leikskólum.