Fossvogsbrún 2, stofnstyrkur
Málsnúmer: 1904399
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1234. fundur
Frá fjármálastjóra, dags. 15. mars, lagt fram erindi vegna umsóknar Kópavogsbæjar um stofnframlag frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vegna byggingar þjónustuíbúða að Fossvogsbrún 2a og Kleifakór 2-4.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir með 11 atkvæðum að hluti af framlagi Kópavogsbæjar til byggingar á þjónustukjörnum að Fossvogsbrún 2a og Kleifakór 2-4 sé 12% stofnframlag sbr. lög um almennar íbúðir nr. 52/2016. Þessi stofnframlög skiptast sem hér segir:
Fossvogsbrún 2a: 34.240.707 kr., þar af 16.464.534 kr. sem lóðagjöld (að núvirði) og 17.776.173 kr. í peningum.
Kleifakór 2-4: 34.860.570 kr., þar af 16.464.534 kr. sem lóðagjöld (að núvirði) og 18.396.036 kr. í peningum.
02
Bæjarráð - 3040. fundur
Frá fjármálastjóra, dags. 15. mars, lagt fram erindi vegna umsóknar Kópavogsbæjar um stofnframlag frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vegna byggingar þjónustuíbúða að Fossvogsbrún 2a og Kleifakór 2-4.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.