Bæjarráð - 3040. fundur
Fjarfundur - Microsoft Teams
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllEinar Örn Þorvarðarson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá fjármálastjóra, dags. 15. mars, lagt fram erindi vegna umsóknar Kópavogsbæjar um stofnframlag frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vegna byggingar þjónustuíbúða að Fossvogsbrún 2a og Kleifakór 2-4.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Frá lögfræðideild, dags. 9. mars, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 4. mars, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Sky Lagoon ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Vesturvör 44, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn.
Frá lögfræðideild, dags. 15. mars, lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 12/2020 þar sem kærð var ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogs um að samþykkja umsókn um leyfi til að reisa fjórbýlishús að Borgarholtsbraut 39.
Lagt fram.
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 11. mars, lagðar fram niðurstöður útboðs vegna byggingar nýs Kárnesskóla þar sem lagt er til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Rizziani de Eccher.
Fundarhlé hófst kl. 9:08, fundi fram haldið kl. 9:39.
Bæjarráð frestar málinu.
05
Til umsagnar frumvarp til laga um greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins (samþætting þjónustu, hlutverk ofl), 561. mál
Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 8. mars, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
06
Til umsagnar frumvarp til laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingarblaðið og aukatekjur ríkisjóðs (gjaldfrjáls rafræn útgáfa), 273. mál
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 8. mars, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingarblaðið og aukatekjur ríkissjóðs (þingmannafrumvarp).
Lagt fram.
07
Til umsagnar frumvarp til laga um brottfall laga um Kristnisjóð ofl, með síðari breytingumm, 470. mál
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 9. mars, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um brottfall laga um Kristnisjóð o.fl. (þingmannafrumvarp).
Lagt fram.
Frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., lagt fram boð á aðalfund sjóðsins þann 26. mars nk.
Lagt fram.
Frá Skipulagsstofnun, dags. 9. mars, lögð fram umsögn um framkomnar athugasemdir við auglýsta tillögu að viðauka við landsskipulagsstefnu.
Lagt fram og vísað til sviðsstjóra umhverfissviðs til upplýsinga.
Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 16 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 15 liðum.
Lagt fram.
13.10 - 2103180 - Haukalind 1-5. Breytt aðkoma að bílastæði.
Lagt fram erindi lóðarhafa Haukalindar 1-5 dags. 2. mars 2021 þar sem óskað er eftir að lækka kantsteinn á milli húsanna þriggja. Með breyttu fyrirkomulagi verður aðkoma að bílastæðum betri sbr. skýringarmyndir. Samþykki lóðarhafana í raðhúsalengjunni liggur fyrir.
Skipulagsráð samþykkir erindið enda verði kostnaður greiddur af lóðarhafa. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
13.8 - 2102584 - Vallargerði 22. Kynning á byggingarleyfi.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Hrólfs Karls Cela arkitekts dags. 3. febrúar 2021 fh. lóðarhafa í Vallargerði 22. Á lóðinni er 113 m2 steinsteypt einbýlishús með sambyggðri 41,6 m2 bílgeymslu, byggt 1965. Óskað er eftir að reisa um 30 m2 viðbyggingu á suðurhlið hússins og koma þar fyrir herbergi ásamt baðherbergi. Uppdráttur í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 3. febrúar 2021. Á fundi skipulagsráðs 1. mars 2021 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Vallargerðis 20, 24, Melgerðis 19, 21, 23 og Kópavogsbrautar 58. Fyrir liggur undirritað samþykki lóðarhafa Vallargerðis 20, 24 og Melgerðis 19, 21, 23 fyrir breytingunni og því er kynningartími styttur.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 21 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.
Bókun undir mál nr. 5 í fundargerð Menntaráðs:
"Ljóst er að tillaga Samfylkingarinnar um hinsegin fræðslu sem fram kom árið 2016 og hvernig unnið var með hana hefur haft góð áhrif á skólastarf og skólabrag í grunnskólum Kópavogs. Jákvætt er að sjá að forvarnarstefna skólanna gerir sérstaklega ráð fyrir hinseginn fræðslu, amk á unglingastigi. Mikilvægt er að formfesta hinsegin fræðslu í skólastefnu grunnskóla Kópavogs, ekki síst á yngri skólastigum. Jákvæð vinna gegn fordómum þarf að vera markviss, lifandi og í sífelldri endurskoðun."
Pétur H. Sigurðsson.
17.4 - 2003630 - Menntasvið-skólaþjónusta, starfsreglur sérdeilda, sérúrræða og sérfræðinga
Starfsreglur sérdeilda við grunnskóla Kópavogs ásamt inn- og útskriftareglum lagðar fram.
Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum starfsreglur sérdeilda við grunnskóla Kópavogs, inn- og útskriftarreglur fyrir einhverfudeildir í Álfhóls- og Salaskóla sem og inn- og útskriftarreglur fyrir sérdeild í Kópavogsskóla og inn- og útskriftarreglur í sérdeild Snælandsskóla.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.