Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kolefnisjöfnun ferða starfsfólks Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 1905502

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3020. fundur

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um stöðu mála vegna kolefnisjöfnunar ferða starfsfólks á vinnutíma innanlands sem utanlands sem bæjarráð samþykkti þann 12. september 2019.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 2969. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 9. september, lögð fram umsögn um tillögu sem barst í bæjarráði þann 23. maí sl. um að Kópavogsbær kolefnisjafni ferðir starfsfólks á vinnutíma jafnt innanlands og utanlands.

Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum.

03

Bæjarráð - 2959. fundur

Frá bæjarfulltrúum Samfylkingar, BF Viðreisnar og Pírata, tillaga um að Kópavogsbær kolefnisjafni ferðir starfsfólks á vinnutíma jafnt innanlands sem utanlands. Umhverfis- og skipulagssviði verði falið að koma með tillögur að því hvernig best sé að útfæra slíka kolefnisjöfnun.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.

Fulltrúar BF-Viðreisnar, Pírata og Samfylkingar lögðu fram svohljóðandi bókun:

"Ljóst er að töluvert margn kolefnis er losað við vinnutengdar ferðir starfsfólks bæjarins. Markmið tillögunnar er að draga úr neikvæðum áhrifum vegna þeirra, en átak í kolefnisbindingu er annað af tveimur helstu áhersluatriðum ríkisstjórnarinnar í baráttunni við loftslagsvána. Með þessu mun Kópavogsbær sýna gott fordæmi um leið og unnið er að því að uppfylla markmið Parísarsamkomulagsins og áætlun um kolefnishlutlaust Ísland 2040.

Theódóra Þorsteinsdóttir, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Bergljót Kristinsdóttir"