Bæjarráð - 2969. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - aðalmaðurBoðaði forföllBirkir Jón Jónsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Másson
Dagskrá fundar
Frá bæjarlögmanni, dags. 9. september, lögð fram umsókn um lóðina Tónahvarf 12 frá Byggingarfélaginu Bestlu ehf. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 9. september, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til niðurrifs Fífuhvamms 20. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 22. ágúst.
Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum fyrir sitt leyti.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 10. september, lagt fram erindi um stöðu framkvæmda við verk sem voru kosin inn í verkefnið Okkar Kópavogur 2018-2019.
Lagt fram.
04
Tillaga Samfylkingar, BF Viðreisnar og Pírata að kolefnisjöfnun ferða starfsfólks Kópavogsbæjar
Fundarhlé hófst kl. 9:10, fundi fram haldið kl. 9:20
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 9. september, lögð fram umsögn um tillögu sem barst í bæjarráði þann 23. maí sl. um að Kópavogsbær kolefnisjafni ferðir starfsfólks á vinnutíma jafnt innanlands og utanlands.
Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 9. september, lögð fram umsögn um tillögu sem barst á fundi bæjarráðs þann 23. maí sl. um að Kópavogsbær skilgreini svæði fyrir skógrækt þar sem bæjarbúar geti gróðursett tré til að vinna gegn eigin kolefnisspori og grætt upp örfoka land á sama tíma þar sem tillaga var um nýtingu ógróins svæðis milli Lækjarbotna og Bláfjallaafleggjara. Einnig lagðar fram nánari skýringar með usmögn frá sviðsstjóra umhverfissviðs dags. 10. september.
Bæjarráð samþykkir minnisblað sviðsstjóra umhverfissviðs með fimm atkvæðum.
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 9. september, lagðar fram niðurstöður útboðs á vetrarþjónustu stofnleiða í Kópavogi 2019-2022. Lagt er til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Íslenska gámafélagið um verkið.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Theodóru S. Þorsteinsdóttur að leitað verði samninga við Íslenska gámafélagið um verkið "Vetrarþjónusta stofnleiða í Kópavogi 2019-2022".
07
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar um lögfræðikostnað vegna Sorpu
Frá framkvæmdastjóra Sorpu, dags. 4. september, lagt fram svar við fyrirspurn um lögfræðikostnað vegna Sorpu sem barst á fundi bæjarráðs þann 22. ágúst sl.
Lagt fram.
Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, dags. 3. september, lögð fram til umsagnar drög að nýjum reglum um fjárhagslegan stuðning Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til að greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga, sem hafa verið birtar í samráðsgátt stjórnvalda.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
09
Tillaga til þingsályktunar um stefnu í málefnum sveitarfélaga og reglur um fjárhagslegan stuðning Jöfnunarsjóðs
Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, dags. 5. september, lögð fram tilkynning um ný fylgiskjöl sem hafa bæst við tillögu til þingsályktunar um stefnu í málefnum sveitarfélaga í samráðsgátt Stjórnarráðsins.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
Frá Ungmennasambandi Kjalarnessþings, dags. 20. ágúst, lagt fram erindi um samstarf við Kópavogsbæ, Breiðablik, HK og Gerplu vegna Íþróttaveislu UMFÍ 2020 sem yrði haldin í Kópavogi, ásamt drögum að samstarfssamningi aðila.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.
11
Rekstrar- og samstarfssamningur Leikfélagsins og Kópavogsbæjar. Ársreikningur og skýrsla stjórnar fyrir liðið leikár
Frá leikfélagi Kópavogs, dags. 27. ágúst, lagður fram reikningur vegna árlegs styrks bæjarins til leikfélagsins skv. rekstrar- og samstarfssamningi þar um, ásamt reikningum félagsins og skýrslu stjórnar fyrir liðið leikár.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til lista- og menningarráðs.
Frá Mörtu Svavarsdóttur, dags. 6. september, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir leyfi fyrir staðsetningu matarvagns á bæjarlandi í Ögurhvarfi.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs
Fundargerð í 11 liðum
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 19 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 38 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.
20.5 - 1901896 - Endurskoðun á reglum um ferðaþjónustu fatlaðra
Drög að reglum lögð fram til afgreiðslu.
Velferðarráð samþykkti reglurnar fyrir sitt leyti. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
20.6 - 1905602 - Endurskoðun á reglum um akstursþjónustu aldraðra
Drög að reglum lögð fram til afgreiðslu.
Velferðarráð samþykkti reglurnar fyrir sitt leyti. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
20.8 - 16082183 - Reglur um félagslega heimaþjónustu. Breyting á 2.gr.
Lögð fram tillaga deildarstjóra dags. 2. september 2019 um reglubreytingu.
Velferðarráð samþykkti breytingatillöguna fyrir sitt leyti. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.