Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Siðareglur kjörinna bæjarfulltrúa og stjórnenda hjá Kópavogsbæ, hagsmunaskráning - Framhaldsmál

Málsnúmer: 1906196

Ferill máls

01

Forsætisnefnd - 181. fundur

Endurskoðun siðareglna.

Forsætisnefnd frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 10.06.2021.

Í ljósi þess að ekki liggja fyrir nýjar leiðbeiningar til sveitarstjórna um gerð siðareglna frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga frestar forsætisnefnd frekari umfjöllun um siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Kópavogsbæ þar til nýjar leiðbeiningar sem eru í vinnslu hjá Sambandinu liggja fyrir.

02

Forsætisnefnd - 180. fundur

Frestað til næsta fundar.

03

Bæjarstjórn - 1233. fundur

Lögð fram drög reglna um hagsmunaskráningu bæjarfulltrúa.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum reglur um hagsmunaskráningu bæjarfulltrúa.

04

Forsætisnefnd - 173. fundur

Lögð fram drög reglna um hagsmunaskráningu bæjarfulltrúa.

Forsætisnefnd samþykkir með þremur atkvæðum drög að reglum um hagsmunaskráningu bæjarfulltrúa fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.

05

Forsætisnefnd - 172. fundur

Uppfærð drög reglna um hagsmunaskráningu bæjarfulltrúa lögð fram.

06

Forsætisnefnd - 171. fundur

07

Forsætisnefnd - 167. fundur

08

Forsætisnefnd - 164. fundur

Lögð fram tillaga að eyðublaði um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa hjá Kópavogsbæ. Forsætisnefnd fólk forstöðumanni UT-deildar að ljúka vinnu við tæknilega framsetningu fyrir næsta fund forsætisnefndar. Uppfært hagsmunaskráningareyðublað kynnt. Forsætisnefnd samþykkti að vísa tillögu að eyðublaði um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarstjórn samþykkti að fresta erindinu og vísa því til forsætisnefndar að nýju á fundi sínum þann 13. október sl.

Umræður.

Forsætisnefnd frestar afgreiðslu málsins.

09

Bæjarstjórn - 1223. fundur

Lögð fram tillaga að eyðublaði um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa hjá Kópavogsbæ. Forsætisnefnd fólk forstöðumanni UT-deildar að ljúka vinnu við tæknilega framsetningu fyrir næsta fund forsætisnefndar. Uppfært hagsmunaskráningareyðublað kynnt. Forsætisnefnd frestaði erindinu til næsta fundar á fundi sínum þann 17. september sl.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að fresta erindinu og vísa því til forsætisnefndar að nýju.

10

Forsætisnefnd - 163. fundur

Lögð fram tillaga að eyðublaði um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa hjá Kópavogsbæ. Forsætisnefnd fólk forstöðumanni UT-deildar að ljúka vinnu við tæknilega framsetningu fyrir næsta fund forsætisnefndar. Uppfært hagsmunaskráningareyðublað kynnt. Forsætisnefnd frestaði erindinu til næsta fundar á fundi sínum þann 17. september sl.

Forsætisnefnd samþykkir að vísa tillögu að eyðublaði um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa til afgreiðslu bæjarstjórnar.

11

Forsætisnefnd - 162. fundur

Lögð fram drög að reglum um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa hjá Kópavogsbæ ásamt tillögu að eyðublaði. Forsætisnefnd fólk forstöðumanni UT-deildar að ljúka vinnu við tæknilega framsetningu fyrir næsta fund forsætisnefndar. Uppfært hagsmunaskráningareyðublað kynnt.

Forsætisnefnd frestar erindinu til næsta fundar.

12

Forsætisnefnd - 161. fundur

Frá bæjarritara, lögð fram drög að reglum um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa hjá Kópavogsbæ ásamt tillögu að eyðublaði.

Forstöðumanni UT deildar falið að ljúka vinnu við tæknilega framsetningu fyrir næsta fund forsætisnefndar.

13

Forsætisnefnd - 153. fundur

Frá bæjarritara, lögð fram drög að reglum um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa hjá Kópavogsbæ ásamt tillögu að eyðublaði.

Forsætisnefnd vísar erindinu til úrvinnslu bæjarlögmanns.

14

Forsætisnefnd - 149. fundur

Lagt fram til upplýsinga svar frá Sambandinu um stöðu á útgáfu leiðbeininga til sveitastjórna við gerð siðareglna.

Lagt fram.

15

Bæjarstjórn - 1198. fundur

Á fundi sínum þann 12. júní 2018 fól bæjarstjórn forsætisnefnd að fara yfir gildandi siðareglur og gera tillögu til bæjarstjórnar um staðfestingu þeirra eða tillögur til breytinga. Forsætisnefnd fól bæjarritara að afla upplýsinga hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um hvort siðanefnd myndi gefa frekari leiðbeiningar til nýkjörinna sveitarstjórna við gerð siðareglna. Lagt fram svar frá sambandinu varðandi stöðu á vinnu siðanefndar sambandins við gerð leiðbeininga til sveitarstjórna.

Bæjarstjórn frestar afgreiðslu málsins með 11 atkvæðum og skorar á siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga að skila af sér leiðbeiningum til sveitarfélaga varðandi endurskoðun siðareglna.

16

Forsætisnefnd - 139. fundur

Á fundi sínum þann 12. júní 2018 fól bæjarstjórn forsætisnefnd að fara yfir gildandi siðareglur og gera tillögu til bæjarstjórnar um staðfestingu þeirra eða tillögur til breytinga. Forsætisnefnd fól bæjarritara að afla upplýsinga hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um hvort siðanefnd myndi gefa frekari leiðbeiningar til nýkjörinna sveitarstjórna við gerð siðareglna. Lagt fram svar frá sambandinu varðandi stöðu á vinnu siðanefndar sambandins við gerð leiðbeininga til sveitarstjórna.

Forsætisnefnd leggur til við bæjarstjórn að siðareglurnar verði staðfestar óbreyttar.