Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Forsætisnefnd - 153. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Friðriksdóttir - aðalmaður
  • Birkir Jón Jónsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Theódóra S Þorsteinsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Dagskrá bæjarstjórnarfundar

I. Dagskrármál

- Covid-19

II. Önnur mál - fundargerðir.

III. Kosningar.

02

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Pírata um hvort bæjarfulltrúi Sjálftæðisflokks hefði brotið siðareglur

Lögð fram afgreiðsla siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga á erindi forsætisnefndar um hvort bæjarfulltrúi hefði brotið siðareglur bæjarfulltrúa Kópavogs.

Lagt fram.

03

Reglur um birtingu fylgigagna með fundargerðum á vef Kópavogsbæjar

Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að reglum um birtingu fylgigagna með fundargerðum á vef Kópavogsbæjar. Forsætisnefnd frestaði málinu á fundi sínum þann 5. mars sl. og hvatti bæjarfulltrúa til að kynna sér regludrögin og gera athugasemdir fyrir næsta fund nefndarinnar.

Forsætisnefnd samþykkir að vísa drögum að reglum um birtingu fylgigagna til afgreiðslu bæjarstjórnar.

04

Óskað eftir umfjöllun um kjaramun aðal- og varamanna

Frá lögfræðideild, dags. 20. febrúar, lagt fram erindi vegna fyrirspurnar um kjaramun aðal- og varamanna í nefndum og ráðum bæjarins.

Forsætisnefnd vísar málinu til umsagnar fjármálastjóra.

05

Siðareglur kjörinna bæjarfulltrúa og stjórnenda hjá Kópavogsbæ - Framhaldsmál

Frá bæjarritara, lögð fram drög að reglum um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa hjá Kópavogsbæ ásamt tillögu að eyðublaði.

Forsætisnefnd vísar erindinu til úrvinnslu bæjarlögmanns.