Hagsmunafélag Smiðjuhverfis lagt niður
Málsnúmer: 1907144
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2964. fundur
Frá hagsmunafélagi Smiðjuhverfis, dags. 4. júlí, lagt fram erindi þar sem tilkynnt er um að félagið hafi verið lagt niður.
Lagt fram.
Bæjarfulltrúar Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar leggja fram eftirfarandi bókun:
,,Hagsmunasamtök Smiðjuhverfis voru stofnuð í febrúar 2014 eftir gott samstarf við Markaðsstofu Kópavogs. Eftir það funduðu Hagsmunasamtökin reglulega með starfsfólki umhverfissviðs og kjörnum fulltrúum. Í samráði við samtökin hafa mörg mál verið rædd og sumt verið framkvæmt, m.a. átak í að hreinsa hverfið, almenn umferðarmál, lagning gangbrauta, götumerkingar, skerpt á lóðamörkum, rætt um uppsetningu hraðamyndavéla og að snjómokstur verði bættur svo dæmi séu tekin. Auk þess hefur verið vilji til þess að auka samvinnu við þróun skipulagsmála, stofnaður hefur verið bílastæðasjóður og gjaldtaka vegna gáma hafin. Almennt hefur verið gott upplýsingaflæði milli Hagsmunasamtakanna og Kópavogsbæjar um framvindu verkefna sem varðar hverfið. Smiðjuhverfið er skipulagt sem þróunarsvæði í aðalskipulagi og verður það áfram í þeirri endurskoðun á aðalskipulagi sem nú stendur yfir. Það er því einstakt tækifæri fyrir Kópavogsbæ að vinna með áhugasömum hagsmunaaðilum eins og þeim sem starfa í Smiðjuhverfi.
Það er ósk undirritaðra að meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks haldi áfram því ágæta samráði og samstarfi sem Kópavogsbær hefur átt við Hagsmunasamtök Smiðjuhverfis síðustu ár og boði þau á samráðsfund hið fyrsta.
Theodóra Þorsteinsdóttir
Pétur Hrafn Sigurðsson
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir"
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar leggja fram eftirfarandi bókun:
,,Við hörmum ákvörðun stjórnar hagsmunasamtaka Smiðjuhverfis um að leggja samtökin niður. Það getur ekki þó verið á ábyrgð bæjarins, enda samtökin stofnuð til að gæta hagsmuna hverfisins m.a. gagnvart bænum. Kópavogsbær hefur frá stofnun samtakanna þann 5. febrúar 2014 átt í miklum samskiptum við stjórn þeirra og hefðu áframhaldandi samskipti verið báðum aðilum gagnleg ekki síst í ljósi breytinga á skipulagi svæðisins sem framundan eru.
Til áréttingar er bent á að frá stofnun samtakanna hefur Kópavogsbær unnið að ýmsum verkefnum í þeim tilgangi að koma til móts við óskir samtakanna og má þar nefna stofnun Bílastæðasjóðs, reglna um stöðuleyfi gáma, merkingar á lóðamörkum og hreinsunardaga. Síðasti fundur bæjarstjóra og starfsmanna umhverfissviðs með samtökunum var í desember síðastliðnum, þar sem fulltrúar samtakanna lögðu fram áhersluatriði þeirra.
Karen E Halldórsdóttir
Hjördís Ýr Johnson
Birkir Jón Jónsson"