Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiðir 19-22, útboð

Málsnúmer: 1907145

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2970. fundur

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 16. september, lagðar fram niðurstöður útboðs í vetrarþjónustu á göngu- og hjólaleiðum 2019-2022. Lagt er til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðendur Hreina garða um svæði A, Stapar verktaka um svæði 1, Hreinsitækni um svæði 2 og 3 og Berg verktaka um svæði 4.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að leitað verði samninga um vetrarþjónustu á göngu- og hjólaleiðum 2019-2022 við Hreina garða um svæði A, Stapar verktaka um svæði 1, Hreinsitækni um svæði 2 og 3 og Berg verktaka um svæði 4. Theódóra Þorsteinsdóttir greiddi ekki atkvæði.

02

Bæjarráð - 2964. fundur

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 8. júlí, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út vetrarþjónustu á göngu- og hjólaleiðum 2019-2022.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita heimild til útboðs á vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða 2019-2022.