Vetrarþjónusta stofnleiðir 19-22, útboð
Málsnúmer: 1907291
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2969. fundur
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 9. september, lagðar fram niðurstöður útboðs á vetrarþjónustu stofnleiða í Kópavogi 2019-2022. Lagt er til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Íslenska gámafélagið um verkið.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Theodóru S. Þorsteinsdóttur að leitað verði samninga við Íslenska gámafélagið um verkið "Vetrarþjónusta stofnleiða í Kópavogi 2019-2022".
02
Bæjarráð - 2965. fundur
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 22. júlí lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að bjóða út vetraþjónustu á stofnleiðum fyrir tímabilið 2019-2022 með heimild til framlengingar um tvisvar sinnum eitt ár.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að heimila útboð á vetraþjónustu á stofnleiðum fyrir tímabilið 2019 -2022 með heimild til framlengingar um tvisvar sinnum eitt ár. Theódóra Þorsteinsdóttir greiddi ekki atkvæði.