Til baka í fundargerðir
Öldungaráð. Áskorun bæjarfulltrúa til FEBK í keppni í boccia
Málsnúmer: 19081152
Ferill máls
01
Öldungaráð - 11. fundur
FEBK tekur áskorun bæjarfulltrúa í keppni í boccia. Bocciamót FEBK og Bæjarstjórnar Kópavogs verður haldið 15.mars nk. í Boðaþingi. FEBK óskar eftir upplýsingum um fjölda þátttakenda frá bæjarstjórn.
Lagt fram. Sendur verður tölvupóstur til bæjarfulltrúa með ósk um þátttöku.
02
Öldungaráð - 10. fundur
Áskorun bæjarfulltrúa í Öldungaráði Kópavogs til Félags eldri borgara í Kópavogi (FEBK) í keppni í boccia.
Bæjarfulltrúar lögðu fram eftirfarandi bókun: "Við skorum á Félag eldri borgara í Kópavogi í keppni í boccia".
Starfsmönnum ráðsins var falið að útfæra mótið í samstarfi við FEBK.