Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Öldungaráð - 10. fundur

í Félagsmiðstöðinni Boðinn, Boðaþingi 9

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Þórarinn Þórarinsson - aðalfulltrúi
  • Sigríður Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
  • Sjöfn Sigþórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Baldur Þór Baldvinsson - varafulltrúi

Starfsmenn

  • Amanda Karima Ólafsdóttir - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
  • Anna Klara Georgsdóttir - Yfirmaður þjónustudeildar aldraðra

Ritari

  • Anna Klara Georgsdóttir

Fundurinn hófst á hádegisverði og kynnisferð um þjónustumiðstöð Boðans í Boðaþingi. Fulltrúar öldungaráðs þakka fyrir hlýjar og góðar móttökur.

Dagskrá fundar

01

Öldungaráð. Umsagnarbeiðni Gæða- og eftirlitsstofnunar. Starfsleyfisumsókn Sinnum

Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar óskar umsagnar öldungaráðs um starfsleyfisumsókn Sinnum.

Öldungaráð Kópavogs lítur umsókn Sinnum jákvæðum augum og sér ekkert því til fyrirstöðu að þau sæki um starfsleyfi.

02

Jafnréttisáætlun Kópavogs 2018-2022

Óskað eftir umsögn um jafnréttis- og mannréttindaáætlun bæjarins.

Lagt fram.

Nefndarmenn munu koma athugasemdum og ábendingum við áætlunina til starfsmanna öldungaráðs, sem skila þeim sameinuðum til jafnréttis- og mannréttindanefndar fyrir hönd ráðsins.

03

Öldungaráð 2019-2020

Áskorun bæjarfulltrúa í Öldungaráði Kópavogs til Félags eldri borgara í Kópavogi (FEBK) í keppni í boccia.

Bæjarfulltrúar lögðu fram eftirfarandi bókun: "Við skorum á Félag eldri borgara í Kópavogi í keppni í boccia".

Starfsmönnum ráðsins var falið að útfæra mótið í samstarfi við FEBK.

04

Samgöngustefna Kópavogsbæjar

Drög að samgöngustefnu Kópavogsbæjar lögð fram til umsagnar.

Nefndarmenn munu koma athugasemdum og ábendingum við áætlunina til starfsmanna öldungaráðs, sem skila þeim sameinuðum til umhverfisfulltrúa fyrir hönd ráðsins.

05

Kynning á stöðu innleiðingar heimsmarkmiða

Verkefnastjóri stefnumótunar kynnti stöðu mála.

Fram kom tillaga um að ræða heimsmarkmiðin á opnum fundi öldungaráðs vorið 2020.