Umsókn um námsleyfi 2020
Málsnúmer: 1908165
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2976. fundur
Frá starfsmannadeild, dags. 7. október, lögð fram umsókn Margrétar Hlínar Sigurðardóttur um launað námsleyfi. Lagt er til að henni verði veitt launað námsleyfi í 3 mánuði á haustönn 2020 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma. Bæjarráð samþykkti 2 mánaða námsleyfi vegna vorannar 2020 á síðasta fundi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu um námsleyfi í 3 mánuði á haustönn 2020.
02
Bæjarráð - 2975. fundur
Frá starfsmannadeild, dags. 7. október, lögð fram umsókn Margrétar Hlínar Sigurðardóttur um launað námsleyfi. Lagt er til að henni verði veitt launað námsleyfi í 2 mánuði á árinu 2020 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita námsleyfi í 2 mánuði á árinu 2020.