Notkun á metani. Óskað eftir formlegri afstöðu Kópavogsbæjar
Málsnúmer: 1908719
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2982. fundur
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 3. desember, lögð fram umsögn f.h. sviðsstjóra umhverfissviðs um erindi Sorpu um notkun metans hjá sveitarfélaginu, ásamt minnisblaði um tillögur að útskiptingu bílaflota bæjarins fyrir umhverfisvæna orkugjafa.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur að fela umhverfissviði að vinna greiningu og gera tillögu að útskiptiáætlun í samræmi við framlagt minnisblað.
Bókun:
"Undirrituð telur mikilvægt að bæjarstjórn móti heildstæða innkaupastefnu þar sem tekið verði tillit til víðtækra umhverfis- og loftslagssjónarmiða áður en útskiptiáætlun til margra ára verði unnin af umhverfissviði."
02
Bæjarráð - 2968. fundur
Frá Sorpu, dags. 19. ágúst, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til notkunar á metani.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.