Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2982. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Dalsmári 5, Fífan. Umsagnarbeiðni vegna tímabundins áfengisleyfis

Frá lögfræðideild, dags. 9. desember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 26. nóvember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Breiðabliks, kt. 480169-0699, um tímabundið áfengisleyfi vegna Kópavogsblótsins sem verður haldið þann 24. janúar frá kl. 19:00-03:00, í Fífunni, Dalsmára 5, 201 Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

02

Engihjalli 8, Matarhjallinn ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 9. desember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 6. nóvember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Matarhjallans ehf., kt. 690119-1020, um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Engihjalla 8, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

03

Gulaþing 3. Heimild til veðsetningar

Frá lögfræðideild, dags. 9. desember, lögð fram beiðni f.h. lóðarhafa Gulaþings 3, Auðar Ýrar Sveinsdóttur og Williams S. McDonald Johnstone, um heimild til að veðsetja lóðina.

Bæjarráð samþykkir erindið.

04

Nýbýlavegur 18, LuxApart, Húsaskjól ehf. Umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 9. desember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 26. nóvember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Húsaskjóls ehf., kt. 640300-3450, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, að Nýbýlavegi 18, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. í reglugerð nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

05

Vesturvör 40-48. Heimild til veðsetningar

Frá lögfræðideild, dags. 10. desember, lögð fram beiðni f.h. lóðarhafa Vesturvarar 44-48, Nature Resort ehf., um heimild til að veðsetja lóðina.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum veðsetningu í samræmi við framlagt minnisblað lögfræðideildar.

06

Vatnsveita Kópavogs, vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu og í Bláfjöllum.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 9. desember, lagt fram erindi um vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu og í Bláfjöllum. Á grundvelli samþykktar samráðshóps um nýjar grunnvatnsrannsóknar á Bláfjallasvæðinu er lagt til við bæjarráð að samþykkt verði þátttaka Vatnsveitu Kópavogs í verkefninu.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum þátttöku í verkefninu.

07

Notkun á metani. Óskað eftir formlegri afstöðu Kópavogsbæjar

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 3. desember, lögð fram umsögn f.h. sviðsstjóra umhverfissviðs um erindi Sorpu um notkun metans hjá sveitarfélaginu, ásamt minnisblaði um tillögur að útskiptingu bílaflota bæjarins fyrir umhverfisvæna orkugjafa.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur að fela umhverfissviði að vinna greiningu og gera tillögu að útskiptiáætlun í samræmi við framlagt minnisblað.

Bókun:

"Undirrituð telur mikilvægt að bæjarstjórn móti heildstæða innkaupastefnu þar sem tekið verði tillit til víðtækra umhverfis- og loftslagssjónarmiða áður en útskiptiáætlun til margra ára verði unnin af umhverfissviði."

08

Til umsagnar: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum (viðaukar). 436. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 9. desember, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir (viðaukar), stjórnarfrumvarp.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.

09

Til umsagnar: Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 2034, 435. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 9. desember, lögð fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034, stjórnartillaga.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.

10

Til umsagnar: Tillaga til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 2024, 434. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 9. desember, lögð fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020-2024, stjórnartillaga.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.

11

Til umsagnar: Frumvarp til laga um um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999 (öldungaráð), 383. mál.

Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 4. desember, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra (öldungaráð), stjórnarfrumvarp.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.

12

Styrkbeiðni vegna rekstur Aflsins 2020

Frá Aflinu samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, dags. 6. desember, lögð fram styrkbeiðni til starfseminnar vegna ársins 2020.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarritara.

13

Fundargerð 251. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 02.12.2019

Fundargerð í 69 liðum.

Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 9:06, fundi fram haldið kl. 9:07.

14

Íþróttaráð - 97. fundur frá 03.12.2019

Fundargerð í 9 liðum

Lagt fram.

15

Menntaráð - 53. fundur frá 03.12.2019

Fundargerð í 6 liðum.

Lögð fram.

16

Fundargerð nr.876 fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 29.11.2019

Fundargerð í 43 liðum.

Lagt fram.

17

Fundargerð 309. fundar stjórnar Strætó frá 30.08.2019

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

18

Fundargerð 310. fundar stjórnar Strætó frá 20.09.2019

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

19

Fundargerð 311. fundar stjórnar Strætó frá 11.10.2019

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

20

Fundargerð 312. fundar stjórnar Strætó frá 28.10.2019

Fundargerð í 3 liðum.

Lagt fram.

21

Fundargerð 313. fundar stjórnar Strætó frá 22.11.2019

Fundargerð í 8 liðum.

Lagt fram.

22

Velferðarráð - 55. fundur frá 09.12.2019

Fundargerð í 8 liðum.

Lagt fram.