Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vallakór 8 - gerð bílastæða

Málsnúmer: 1909754

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1202. fundur

Frá sviðsstjórum umhverfis- og menntasviðs, dags. 30. september, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að útbúa bílastæði á lóð Vallarkórs 8.

Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum að veita heimild til gerðar bílastæða á lóð Vallakórs 8. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Theódóra Þorsteinsdóttir og Hreiðar Oddsson greiddu ekki atkvæði.

Theódóra Þorsteinsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Undirrituð treystir sér ekki til þess að greiða atkvæði með þessari framkvæmd í ljósi þess að hvorki liggja fyrir upplýsingar um þarfagreiningu né hvort samráð hafi verið við þá sem málið varðar.

Theódóra Þorsteinsdóttir"

02

Bæjarráð - 2972. fundur

Frá sviðsstjórum umhverfis- og menntasviðs, dags. 30. september, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að útbúa bílastæði á lóð Vallarkórs 8.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.