Bæjarráð - 2972. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaðurBoðaði forföllHjördís Ýr Johnson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Páll Magnússon - bæjarritari
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
01
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar um mælingar á frammistöðu tengdum stefnumótun Kópavogsbæjar
Frá bæjarritara, dags. 1. október, lagt fram svar við fyrirspurn sem barst á fundi bæjarráðs þann 26. september sl. um skorkort Framfaravogarinnar fyrir Kópavogsbæ.
Lagt fram.
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 30. september, lögð fram umsögn um erindi UMSK varðandi samstarf um Íþróttaveislu UMFÍ sem haldin verður 26-28. júní 2020, þar sem lagt er til að bæjarráð samþykki þátttöku bæjarins í viðburðinum og að undirritaður verði samstarfssamningur þar um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum þátttöku Kópavogsbæjar í viðburðinum.
Frá sviðsstjórum umhverfis- og menntasviðs, dags. 30. september, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að útbúa bílastæði á lóð Vallarkórs 8.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Frá deildarstóra þjónustu- og ráðgjafadeildar fatlaðra, dags. 19. september, lögð fram tillaga að hækkun á einingaverði NPA samninga ásamt greinargerð og þar til gerðum fylgiskjölum. Velferðarráð samþykkti tillögu að hækkun einingaverðs NPA samninga fyrir sitt leyti á fundi sínum þann 23. september og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins til næsta fundar á fundi sínum þann 26. september.
Bæjarráð samþykkir með fjórum samhljóða atkvæðum framlagða tillögu um hækkun á einingarverði NPA samninga. Bergljót Kristinsdóttir greiddi ekki atkvæði.
Frá verkefnastjóra á umhverfissviði, dags. 1. október, lögð fram skýrsla Vinnuskólans í Kópavogi fyrir sumarið 2019.
Lagt fram.
Frá húsfélaginu Forsölum 1, dags. 27. september, fyrirspurn um styrk til rafvæðingar rafbíla í bílakjöllurum fjölbýlishúsa.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar umhverfissviðs.
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 26. september, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um skráningu einstaklinga (heildarlög), stjórnarfrumvarp.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til úrvinnslu.
08
Til umsagnar: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, með síðari breytingum (framlög til sjálfstætt rekinna grunnskóla), 16. mál
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 27. september, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla (framlög til sjálfstætt rekinna grunnskóla), þingmannamál.
Lagt fram.
09
Til umsagnar: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (endurgreiðsla virðisaukaskatts), 26. mál
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 26. september, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum umvirðisaukaskatt (endurgreiðsla virðisaukaskatts), þingmannamál.
Lagt fram.
10
Til umsagnar: Tillaga til þingsályktunar um rannsóknir á þunglyndi meðal eldri borgara, 22. mál
Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 26. september, lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um rannsóknir á þunglyndi meðal eldri borgara, þingmannamál.
Lagt fram.
11
Til umsagnar: Frumvarp til laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta, 122. mál
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 25. september, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um ráðstafanir til hagkvæmrauppbyggingar háhraða fjarskiptaneta, stjórnarfrumvarp.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til úrvinnslu.
Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.
Theódóra Þorsteinsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Ég harma að til þess þurfi að koma að láta gera enn eina 10 milljóna króna úttektina á Sorpu og í þetta sinn beinlínis vegna óábyrgrar fjármálastjórnunar. Óska eftir að fá aðgang að gögnum við liðið nr. 3,4 og 8.
Theódóra Þorsteinsdóttir"