Til umsagnar: Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (íbúakosningar um einstök mál), 49. mál.
Málsnúmer: 1910509
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2976. fundur
Frá Umhverfis- og sammgöngunefnda Alþingis, dags. 22.10.2019, lögð fram ósk um umsögn á frumvarpi til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 (íbúakosningar um einstök mál), þingmannafrumvarp.
Lagt fram.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Píratar í Kópavogi fagna frumvarpinu, sem hefur það markmið að skýra og auka frelsi sveitarfélaga til þess að kalla til borgarafundar annars vegar og til þess að halda íbúakosningar um einstök málefni hins vegar. Málskots- og frumkvæðisréttur eru mikilvæg aðhaldstæki fyrir íbúa sveitarfélaga til að kalla til samtals og mikilvægt er að því séu gerð betri skil í lögum. Þetta er sjálfsagt skref í takt við auknar lýðræðiskröfur samfélagsins, og ekki veitir af ef raunverulegur vilji er til þess að auka traust á stjórnkerfinu.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir"