Til baka í fundargerðir
Nýbýlavegur 18, LuxApart, Húsaskjól ehf. Umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi
Málsnúmer: 1911767
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2982. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 9. desember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 26. nóvember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Húsaskjóls ehf., kt. 640300-3450, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, að Nýbýlavegi 18, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. í reglugerð nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.