Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Íþróttahátíð Kópavogs - Þátttaka í alþjóðlegum mótum/keppnum

Málsnúmer: 1911862

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 99. fundur

Á fundi sínum þann 10. janúar 2019, samþykkti íþróttaráð að veita íþróttafólki úr Kópavogi viðurkenningu íþróttaráðs, sem tekið hafa þátt á árinu, í keppnum í meistaraflokki sem falla undir Evrópumót og heimsmeistaramót eða tekið þátt í mótum innan Ólympíuraða óháð aldri.

Eftirtalið íþróttafólk fær viðurkenningu íþróttaráðs árið 2019 vegna þátttöku:

Á Evrópumeistaramóti

Eyþór Örn Baldursson, Agnes Suto Tuuha og Thelma Aðalsteinsdóttir í áhaldafimleikum, Aron Snær Júlíusson og Hulda Clara Gestsdóttir í golfi, Birgit Rós Becker í kraftlyftingum og Guðlaug Edda Hannesdóttir í þríþraut.

Á Heimsmeistaramóti

Martin Bjarni Guðmundsson í áhaldafimleikum, Jón Þór Sigurðsson í skotíþróttum, Gylfi Már Hrafnsson og og María Tinna Hauksdóttir í dansi.

Á Evrópu- og Heimsmeistaramóti

Valgarð Reinhardsson í fimleikum og Ingvar Ómarsson í hjólreiðum.

02

Íþróttaráð - 97. fundur

Íþróttaráð samþykkti á 89. fundi ráðsins 10. jan. sl., að veita íþróttafólki úr Kópavogi viðurkenningu fyrir þátttöku í alþjóðlegum mótum/keppnum í meistaraflokki sem falla undir Evrópumót og heimsmeistaramót eða mótum innan Ólympíuraða óháð aldri.

Starfsmönnum falið að óska eftir upplýsingum frá íþróttafélögunum.