Óskað eftir umfjöllun um kjaramun aðal- og varamanna
Málsnúmer: 1912421
Ferill máls
01
Forsætisnefnd - 162. fundur
Frá fjármálastjóra, dags. 14. september, lögð fram umsögn um kjaramun aðal- og varamanna í nefndum og ráðum bæjarins.
Lagt fram.
Forsætisnefnd frestar erindinu til næsta fundar.
02
Forsætisnefnd - 153. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 20. febrúar, lagt fram erindi vegna fyrirspurnar um kjaramun aðal- og varamanna í nefndum og ráðum bæjarins.
Forsætisnefnd vísar málinu til umsagnar fjármálastjóra.
03
Forsætisnefnd - 150. fundur
Frá Karen E. Halldórsdóttur, fyrirspurn þar sem óskað er eftir því að forsætisnefnd fjalli um hversu eðlilegt eða rétt það er að varamenn í ráðum með sömu ábyrgð og aðalmenn fái lægra greitt en aðalmenn. Óskað er eftir rökstuðningi eða leiðréttingu á þessum kjaramun.
Forsætisnefnd vísar erindinu til umsagnar bæjarritara.
Bókun Theódóru S. Þorsteinsdóttur:
"Tek heilshugar undir með bæjarfulltrúa Karen E. Halldórsdóttur um það hrópandi óréttlæti sem falið er í kjaramun aðal- og varamanna í ráðum og styð eindregið að lækka kjör aðalmanna í ráðum hjá Kópavogsbæ."
Fundarhlé hófst kl. 16:42, fundi fram haldið kl. 16:45.
Bókun Margrétar Friðriksdóttur og Birkis Jóns Jónssonar:
"Það er eðlilegt að þessi mál séu skoðuð og óskum við eftir að bæjarritari afli gagna um málið m.a. með tilliti til annarra sveitarfélaga."