Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bláfáni 2020

Málsnúmer: 2001310

Ferill máls

01

Hafnarstjórn - 113. fundur

Frá umhverfis- og samgönguefnd, dags. 21. janúar 2020, lagt fram erindi með ósk um að hefja undirbúningsvinnu við að sækja Bláfána fyrir Ýmishöfn 2020 og Kópavogshöfn 2021.

Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur hafnarverði að vinna það áfram með siglingaklúbbinum Ými og umhverfis- og samgöngunefnd.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 123. fundur

Frá Blue flag international lagðar fram upplýsingar um fyrirkomulag Bláfána á Íslandi og umsóknarfrest til að sækja um Bláfána fyrir árið 2020 dags. 14. janúar 2020.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að hefja undirbúningsvinnu við að sækja um Bláfána fyrir Ýmishöfn 2020 og Kópavogshöfn 2021. Vísað til umsagnar hafnastjórnar og kostnaðargreiningar.