Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Hafnarstjórn - 113. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Kristján Friðþjófsson - aðalmaður
  • Kristín Bára Alfreðsdóttir - aðalmaður
  • Jón Magnússon - aðalmaður
  • Tómas Þór Tómasson - aðalmaður
  • Friðrik Fraser - aðalmaður
  • Ármann Kristinn Ólafsson - hafnarstjóri

Starfsmenn

  • Jóna Vigdís Kristinsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Jóna Vigdís Kristinsdóttir

Dagskrá fundar

01

Ýmis mál í hafnarstjórn

1) Ráðning hafnarvarðar.

2) Verkefni framundan.

1) Hafnarstjóri gerði grein fyrir ráðningu hafnarvarðar. Atli Hermannsson var ráðinn hafnarvörður og var hann boðinn velkominn til starfa af hafnarstjórn.

2) Lagður fram listi frá hafnarstjórn yfir verkefni sem þarf að sinna við Kópavogshöfn. Vísað til hafnarvarðar.

02

Endurskoðuð áætlun móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleyfa skipa

Frá bæjarráði, dags. 23. janúar, lögð fram 2 erindi frá Umhverfisstofnun sem vísað er til afgreiðslu hafnarstjórnar.

1. Erindi frá Umhverfisstofnun, dags. 14. janúar 2020, um eftirit með móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum.

2. Erindi frá Umhverfisstofnun, dags. 19. desember 2019, um staðfestingu á áætlun Kópavogshafna um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum.

1. Lagt fram.

2. Áætlun Kópavogshafna lögð fram og hún staðfest.

03

Bláfáni 2020

Frá umhverfis- og samgönguefnd, dags. 21. janúar 2020, lagt fram erindi með ósk um að hefja undirbúningsvinnu við að sækja Bláfána fyrir Ýmishöfn 2020 og Kópavogshöfn 2021.

Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur hafnarverði að vinna það áfram með siglingaklúbbinum Ými og umhverfis- og samgöngunefnd.

04

Fyrirspurn um aðkomu Hafnarstjórnar að ýmsum málum. Frá Guðmundi Geirdal

Frá lögfræðideild dags. 3. desember, lögð fram umsögn um fyrirspurn um hlutverk hafnarstjórnar og aðkomu hennar að málum. Lagt fyrir forsætisnefnd þann 6. desember og vísað til hafnarstjórnar til kynningar.

Lagt fram.