Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Erindi frá Theódóru Þorsteinsdóttur vegna fundar lista-og menningarráðs þann 21.01.2020.

Málsnúmer: 2002489

Ferill máls

01

Forsætisnefnd - 156. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 14. apríl, lögð fram umsögn um hvort fundargerð lista- og menningarráðs frá 21. janúar sé í samræmi við reglur um ritun fundargerða og ætti sér fordæmi.

Lagt fram.

Forsætisnefnd hvetur nefndir og ráð til þess að halda ekki fundi þar sem verðlaunahátíðir eru eina dagskrármál viðkomandi fundar og passi að fundarreglur séu virtar í hvívetna.

02

Forsætisnefnd - 152. fundur

Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur varðandi fund lista-og menningarráðs þann 21. janúar 2020. Óskað er eftir upplýsingum frá forsætisnefnd um hvort fundur ráðsins sé í samræmi við reglur um ritun fundagerða. Forsætisnefnd frestaði málinu til næsta fundar.

Forsætisnefnd vísar erindinu til umsagnar bæjarritara.

03

Forsætisnefnd - 151. fundur

Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur varðandi fund lista-og menningarráðs þann 21. janúar 2020. Óskað er eftir upplýsingum frá forsætisnefnd um hvort fundur ráðsins sé í samræmi við reglur um ritun fundagerða.

Frestað til næsta fundar.