Tillaga Theódóru S. Þorsteinsdóttur um að farið verði í átak til að hreinsa umhverfið á Kársnesinu
Málsnúmer: 2005645
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3014. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 24. ágúst, lögð fram umsögn um tillögu úr bæjarráði um að farið yrði í átak í að laga til og hreinsa umhverfið á Kársnesi í samvinnu við fyrirtæki og íbúa á svæðinu. Einnig lagt fram minnisblað umhverfisfulltrúa vegna málsins.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 3010. fundur
Frá bæjarfulltrúa Theodóru S. Þorsteinsdóttur, dags. 4. ágúst 2020, lögð fram ósk um upplýsingar um það tiltektarátak sem farið var í á Kársnesinu í samvinnu við fyrirtæki og íbúa á svæðinu.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.
03
Bæjarstjórn - 1217. fundur
Frá umhverfisfulltrúa, dags. 2. júní, lagt fram minnisblað um tillögu um að farið verði í átak að laga til og hreinsa umhverfið á Kársnesinu í samvinnu við fyrirtæki og íbúa á svæðinu.
04
Bæjarráð - 3005. fundur
Frá umhverfisfulltrúa, dags. 2. júní, lagt fram minnisblað um tillögu um að farið verði í átak að laga til og hreinsa umhverfið á Kársnesinu í samvinnu við fyrirtæki og íbúa á svæðinu.
Lagt fram.