Bæjarráð - 3005. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Tillögur lögfræðings velferðarsviðs að breytingum á reglum um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis lagðar fram til afgreiðslu. Velferðarráð samþykkti framlagðar breytingar á reglum fyrir sitt leyti. Lögfræðingi velferðarsviðs var falið að gera breytingar á 17. og 20. grein til samræmis við umræður og leggja málið að því loknu fyrir bæjarráð til afgreiðslu. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins til næsta fundar á fundi sínum þann 28. maí sl.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Tillögur menntasviðs vegna áhrifa af Covid 19 um lækkun leigugreiðslna vegna samninga um húsaleigu annars vegar og framlög til einkaleikskóla og leiðréttingu á gjöldum foreldra barna á einkareknum skólum hins vegar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðar tillögur um aðgerðir vegna Covid-19.
Frá bæjarlögmanni, dags. 2. júní, lögð fram umsókn um lóðina Markarveg 7 frá S8 ehf., kt. 661005-1490. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa S8 ehf. kost á byggingarrétti á lóðinni Markarvegi 7.
Frá bæjarlögmanni, dags. 2. júní, lögð fram umsókn um lóðina Markarveg 8 frá S8 ehf., kt. 661005-1490. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita S8 ehf. kost á byggingarrétti á lóðinni Markarvegi 8.
Frá íþróttaráði, lögð fram drög að nýrri 2. mgr. 9. gr. samstarfssamnings milli Kópavogsbæjar og Samstarfsvettvangs Íþróttafélaga í Kópavogi: "Í samræmi við 11. gr. laga SÍK þar sem fram kemur að starfsmenn íþróttadeildar Kópavogs og fulltrúi íþróttaráðs hafa rétt til þingsetu með málfrelsi og tillögurétt þá skulu þessir aðilar einnig boðaðir á stjórnarfundi SÍK þar sem þeir njóta sömu réttinda og á ársþingi SÍK. Boðun framangreindra aðila á stjórnarfund SÍK er háð því skilyrði að Kópavogsbær tilnefni með skriflegum hætti til SÍK hvaða aðilar eru fulltrúar Kópavogsbæjar hvað þetta varðar."
Íþróttaráð lagði til við bæjarráð á þessi breyting yrði samþykkt og Kópavogsbær tilnefni fulltrúa í stjórn SÍK. Bæjarráð frestaði málinu á síðasta fundi.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
06
Tillaga Theódóru S. Þorsteinsdóttur um að farið verði í átak til að hreinsa umhverfið á Kársnesinu
Frá umhverfisfulltrúa, dags. 2. júní, lagt fram minnisblað um tillögu um að farið verði í átak að laga til og hreinsa umhverfið á Kársnesinu í samvinnu við fyrirtæki og íbúa á svæðinu.
Lagt fram.
Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, dags. 28. maí, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir upplýsingum um fjármál sveitarfélaga í kjölfar áhrifa af Covid-19 faraldrinum sem skuli berast ráðuneytinu eigi síðar en 9. júní nk.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu fjármálastjóra.
Frá Landskerfi bókasafna, dags. 26. maí, lagt fram boð á aðalfund Landskerfis bókasafna sem haldinn verður þann 11. júní nk.
Bæjarráð samþykkir að veita Lísu Zachrison Valdimarsdóttur umboð til að fara með atkvæði Kópavogsbæjar á fundinum.
09
Til umsagnar: Frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, 838. mál.
Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 28. maí, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, notendaráð (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.