Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Stofnun hlutafélags - Betri samgöngur ohf.

Málsnúmer: 2008898

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 128. fundur

Kynning á verkefnum Betri samgangna.

02

Bæjarráð - 3100. fundur

Kynning á verkefnum Betri samgangna.

Kynning.

03

Bæjarstjórn - 1220. fundur

Frá SSH, dags. 20. ágúst, lagt fram erindi um stofnun hlutafélags um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu þar sem drög að samþykktum, stofnsamningur og hluthafasamkomulag er vísað til afgreiðslu hjá aðildarsveitarfélögum.

Kynning á málinu frá SSH.

Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur að taka þátt í stofnun opinbers hlutafélags og leggi hlutafélaginu til stofnfé í samræmi við framlagt erindi. Bæjarstjórn samþykkir jafnframt að fela bæjarstjóra að undirrita stofnsamning og hluthafasamkomulag fyrir hönd Kópavogsbæjar.

Bókun:

"Markmið samgöngusáttmálans eru góð, uppbygging innviða sem stuðlar að aukinni notkun virkra ferðamáta er eitt mikilvægasta verkefnið sem við stöndum frammi fyrir. Það varðar bæði loftslagið, lýðheilsu og lífsgæði íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Mikilvægt er að útfærsla „sérstakrar fjármögnunar“ í samkomulaginu verði opnari og aðgengilegri en samningaferlið var. Gert er ráð fyrir að þessi hluti fjármögnunarinnar geti verið með ýmsum hætti eftir því hver vilji Alþingis kann að vera, að því gefnu að það samræmist markmiðum samkomulagsins. Mestu máli skiptir að í þeirri útfærslu verði ekki vegið að þeim tekjulægstu í samfélaginu né að friðhelgi einkalífs."

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

04

Bæjarráð - 3013. fundur

Frá SSH, dags. 20. ágúst, lagt fram erindi um stofnun hlutafélags um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu þar sem drög að samþykktum, stofnsamningur og hluthafasamkomulag er vísað til afgreiðslu hjá aðildarsveitarfélögum.

Kynning á málinu frá SSH.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.