Til baka í fundargerðir
Tillaga bæjarfulltrúa Pírata, BF Viðreisnar og Samfylkingar um stofnun stýrihóps um íbúasamráð
Málsnúmer: 2011250
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3031. fundur
Frá bæjarstjóra, dags. 12. desember, lagt fram erindi ásamt minnisblaði verkefnastjóra íbúatengsla um stofnun stýrihóps um íbúasamráð frá 8. janúar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu bæjarstjóra um fyrirkomulag vinnu við íbúasamráð.
02
Bæjarráð - 3023. fundur
Tillaga frá bæjarfulltrúum Pírata, BF Viðreisnar og Samfylkingar um að bæjarráð samþykki að stofna stýrihóp um íbúasamráð. Auk starfsfólks skuli vera fulltrúi frá hverjum flokki sem eigi fulltrúa í bæjarstjórn. Stýrihópurinn hafi það hlutverk að móta meginreglur um íbúasamráð, sbr. handbók Sambands íslenskra sveitarfélaga um íbúasamráð í sveitarfélögum og þáttöku íbúa.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar bæjarstjóra.