Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Útboð - Malbiksyfirlagnir 2021

Málsnúmer: 2101641

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3044. fundur

Frá deildarstjóra gatnadeildar, lagt fram erindi með niðurstöðum útboðs í malbiksyfirlagnir 2021-2022 dags. 16.04.2021, og erindi með niðurstöðum útboðs í malbiksfræsingar 2021-2022 dags. 20.4.2021. Lagt er til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Loftorku Reykjavík ehf. um malbiksyfirlagnir í Kópavogi árin 2021-2022 og lægstbjóðanda Colas Ísland hf. um malbiksfræsingar í Kópavogi árin 2021-2022.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Loftorku Reykjavík ehf. um malbiksyfirlagnir í Kópavogi árin 2021-2022

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Colas Ísland hf. um malbiksfræsingar í Kópavogi árin 2021-2022.

Bókun:

"Bæjarráð óskar eftir upplýsingum frá Vegagerðinni um stöðu hreinsunar og malbiksyfirlagna Nýbýlavegar. Knýjandi þörf er orðin á lagfæringu vegarins."

02

Bæjarráð - 3034. fundur

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 29. janúar, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út í opnu útboði malbiksfræsingu og malbiksyfirlagnir gatna í Kópavogi 2021-2022.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild.

Bókun:

"Undirrituð óskar eftir því að fá á dagskrá drög að áætlun er varðar þær götur sem fara í hugsanlega/mögulega endurnýjun og/eða viðgerð á þessu ári. Jafnframt á sömu forsendum hvaða göngustígar fara í endurnýjun og/eða viðgerð á þessu ári."

Theódóra S. Þorsteinsdóttir