Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3044. fundur

Fjarfundur - Microsoft Teams

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Einar Örn Þorvarðarson - varamaður

Starfsmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Ferðaþjónusta samningur við Teit Jónasson ehf

Frá bæjarstjóra, dags. 27.04.2021, lagður fram viðauki við samning um ferðaþjónustu fatlaðra í Kópavogi 2020-2025 þar sem óskað er eftir því að bæjarráð veiti bæjarstjóra umboð til að skrifa undir samninginn.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan samning.

02

Tónahvarf 4, afturköllun úthlutunar.

Frá bæjarlögmanni, dags. 26.04.2021, lagt fram erindi varðandi afturköllun úthlutunnar lóðarinnar að Tónahvarfi 4.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Okkar Kópavogur 2021 - 2023

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 16.04. 2021, lagt fram yfirlit yfir stöðu framkvæmda við verk sem kosin voru inn í verkefnið "Okkar Kópavogur" 2019-2021.

Lagt fram.

04

Rafrennur, samningar um afnot.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 26.04.2021, lagt fram erindi varðandi samninga við þá aðila sem hafa leyfi fyrir rafrennum og afnot af landi Kópavogsbæjar vegna þeirra. Erindinu fylgja drög að samningi.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan samning.

05

Dalvegur 1. Nýr áningarstaður í Kópavogsdal, erindi.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 26.04.2021, lögð fram umsögn um nýtingu lóðarinnar að Dalvegi 1.

Lagt fram.

06

Lækjarhjalli 34, kæra.

Frá lögfræðideild, dags. 23.04.2021, lögð fram niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr.136/2020 varðandi ákvörðun skipulagsstjóra Kópavogs um að hafna erindi lóðarhafa Lækjarhalla 34 þar sem óskað var eftir að koma fyrir auka bílastæði á lóð.

Lagt fram.

07

Lækjarbotnaland 15. Beiðni um endurupptöku

Frá lögfræðideild, dags. 27.04.2021, lögð fram umsögn vegna beiðni um endurupptöku máls.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að endurupptaka málið og vísar því til nýrrar efnismeðferðar skipulagsráðs.

08

Borgarholtsbraut 39, kæra vegna breytt deiliskipulag.

Frá lögfræðideild, dags. 26.04.2021, lagt fram erindi varðandi úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 112/2020 varðandi byggingarleyfi á fjórbýlishúsi á lóðinni við Borgarholtsbraut 39.

Lagt fram.

09

Skálaheiði 2, Íþróttahúsið Digranes - Endurnýjun lýsingar

Frá verkefnastjóra eignadeildar, dags. 26.04.2021, lagt fram erindi varðandi endurnýjum lýsingar í íþróttahúsinu Digranesi. Lagt er til við bæjarráð að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Ajraf ehf.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Ajraf ehf.

10

Útboð - Efnisútvegun malbik 2021

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 20.04.2021, lagt fram erindi með niðurstöðum útboðs í efnisvegun malbiks fyrir Kópavog 2021-2022. Lagt er til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Malbikunarstöðina Höfða hf. um efnisvegum malbiks fyrir Kópavog árin 2021-2022.

Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

11

Útboð - Malbiksyfirlagnir 2021

Frá deildarstjóra gatnadeildar, lagt fram erindi með niðurstöðum útboðs í malbiksyfirlagnir 2021-2022 dags. 16.04.2021, og erindi með niðurstöðum útboðs í malbiksfræsingar 2021-2022 dags. 20.4.2021. Lagt er til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Loftorku Reykjavík ehf. um malbiksyfirlagnir í Kópavogi árin 2021-2022 og lægstbjóðanda Colas Ísland hf. um malbiksfræsingar í Kópavogi árin 2021-2022.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Loftorku Reykjavík ehf. um malbiksyfirlagnir í Kópavogi árin 2021-2022

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Colas Ísland hf. um malbiksfræsingar í Kópavogi árin 2021-2022.

Bókun:

"Bæjarráð óskar eftir upplýsingum frá Vegagerðinni um stöðu hreinsunar og malbiksyfirlagna Nýbýlavegar. Knýjandi þörf er orðin á lagfæringu vegarins."

12

Útboð - Skólaakstur og hópbifreiðaþjónusta fyrir Kópavogsbæ 2021 - 2024

Frá rekstrarstjóra menntasviðs, dags. 26.04.2021, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út í opnu útboði skólaakstur og rammasamning um hópbifreiðarþjónustu fyrir Kópavogsbæ.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild til að bjóða út í opnu útboði skólaakstur og rammasamning um hópbifreiðarþjónustu fyrir Kópavogsbæ.

13

Útboð - Rekstur líkamsræktarðastöðu við sundlaugar í Kópavogi

Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 26.04.2021, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út í opnu útboði rekstur og útleigu á líkamsræktaraðstöðu í sundlaugum Kópavogs.

Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

14

Fjármál sveitarfélaga í kjölfar COVID-19

Frá samgöngu-og sveitarstjórnarráðherra, dags. 13.04.2021, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir upplýsingum um stöðu fjármála á yfirstandandi ári. Meðal þeirra upplýsinga sem kallað er eftir eru fjárhagsáætlanir með viðaukum sem gerðir hafa verið á árinu.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu sviðsstjóra fjármálasviðs.

15

Styrkbeiðni vegna reksturs samtakanna

Frá Karlaathvarfinu, dags. 26.04.2021, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir fjárhagsstuðningi frá Kópavogsbæ.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs.

16

Samræming úrgangsflokkunar. Niðurstaða 523. fundar stjórnar SSH

Frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 23.04.2021, lagt fram erindi með niðurstöðu stjórnar varðandi samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu.

Lagt fram.

17

Sameining heilbrigðiseftirlita

Frá Heilbrigðiseftirliti(HEF), dags. 21.04.2021, lögð fram drög að samþykkt um Heilbrigðiseftirlit fyrir Garðabæ, Hafnarfjörð, Kópavog, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes.

Bæjarráð frestar erindinu.

18

Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um endurskoða landsskipulagsstefnu 2015 - 2026, 705. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 15.04.2021, lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um endurskoðaða landsskipulagsstefnu.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

19

Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta - og menningarmála (öflun sakavottorðs), 715. mál (stjórnarfrumvarp)

Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 15.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmála (öflun sakavottorðs), 715. mál.



Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

20

Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um staðsetningu vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands, 707. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 15.04.2021, lögð fram til umsagnar þingsályktunartillaga um staðsetningu vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands, 707. mál.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

21

Til umsagnar frumvarp til laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, 712. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 15.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, 712. mál.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

22

Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun (málsmeðferð virkjunarkosta í vindorku), 709. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags.15.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (málsmeðferð virkjunarkosta í vindorku), 709. mál.



Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

23

Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um skráða sambúð fleiri en tveggja aðila, 539. mál

Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 21.04.2021, lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um skráða sambúð fleiri en tveggja aðila, 539. mál.



Lagt fram.

24

Til umsagnar frumvarp til laga um grunnskóla og framhaldsskóla (fagráð eineltismála), 716. mál

Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 15.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um grunnskóla og framhaldsskóla(fagráð eineltismála), 716. mál.



Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

25

Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald, 708. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 15.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald (EES-reglur, hringrásarhagkerfi), 708. mál.



Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

26

Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, 668. mál

Frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, dags. 21.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, nr. 162/2006 (gagnsæi, skráning og vinnsla persónuupplýsinga), 668. mál.



Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

27

Til umsagnar frumvarp til laga um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (níkótínvörur), 713. mál

Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 15.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur), 713. mál.



Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

28

Til umsagnar frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð, 702. mál

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 23.04.2021, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð, 702. mál.



Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

29

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 314. fundur frá 21.04.2021

Fundargerð í 11 liðum.

Lagt fram.

30

Barnaverndarnefnd - 119. fundur frá 14.04.2021

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

31

Hafnarstjórn - 119. fundur frá 19.04.2021

Fundargerð í 3 liðum.

Lagt fram.

32

Fundargerð 265. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 26.04.2021

33

Íþróttaráð - 110. fundur frá 14.04.2021

Fundargerð í 4 liðum.

Lagt fram.

34

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 81. fundur frá 15.04.2021

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.

35

Fundargerð 226. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 26.03.2021

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.

36

Fundargerð 225. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 24.03.2021

37

Fundargerð 224. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 24.03.2021

38

Fundargerð 446. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 09.04.2021

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

39

Fundargerð 523. fundar stjórnar SSH frá 12.04.2021

Fundargerð í 20 liðum.

Lagt fram.

40

Fundargerð 338. fundar stjórnar Strætó frá 09.04.2021

Fundargerð í 7 liðum.

Lagt fram.

41

Skipulagsráð - 96. fundur frá 19.04.2021

Fundargerð í 20 liðum.

Lagt fram.


41.10 - 2104170 - Dimmuhvarf 3, 5, 7, 7A, 7B, 9B og Melahvarf 6, 8, 10, 12. Ósk um stækkun lóða.

Lagt fram erindi lóðarhafa Dimmuhvarfi 3, 5, 7, 7a, 7b, 9b og Melahvarfi 6, 8, 10 og 12 dags. 6. apríl 2021 þar sem óskað er eftir stækkun lóða inn á bæjarland sem húsin mynda hring utan um. Umrætt bæjarland er um 3000 m2 og eru óskir um lóðastækkanir breytilegar eftir lóðum. Dimmuhvarf 3 er í dag 3222 m2 en væri eftir breytingu 3281 m2. Dimmuhvarf 5 er í dag 1403 m2 en væri eftir breytingu 1888 m2. Dimmuhvarf 7 er í dag 852 m2 en væri eftir breytingu 1115 m2. Dimmuhvarf 7a er í dag 608,5 m2 en væri eftir breytingu 773,5 m2. Dimmuhvarf 7b er í dag 608,5 m2 en væri eftir breytingu 932,5 m2. Dimmuhvarf 9b er í dag 1032 m2 en væri eftir breytingu 1201 m2. Melahvarf 6 er í dag 1919 m2 en væri eftir breytingu 2891 m2. Melahvarf 8 er í dag 2891 m2 en væri eftir breytingu 3376 m2. Melahvarf 10 er í dag 2011 m2 en væri eftir breytingu 2482 m2. Melahvarf 12 er í dag 2255 m2 en væri eftir breytingu 2541 m2. Hagsmunaaðilar við Dimmuhvarf 9A og Melahvarf 4 eru samþykkir þessum tillögum en óska ekki eftir stækkun á sínum lóðum. Meðfylgjandi skýringarmyndir og undirritað samþykki lóðarhafa, dags. 6. apríl 2021. Auk þess lögð fram samantekt um hugmyndasöfnun um opin svæði frá verkefnastjóra íbúatengla dags. 3. mars 2021 og minnisblað skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2021.

Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



41.4 - 2101743 - Kársnesskóli. Lausar kennslustofur.

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga umhverfissviðs að breyttu fyrirkomulagi færanlegra kennslustofa við Kársnesskóla. Í breytingunni felst að komið verði fyrir tveimur færanlegum kennslustofum í viðbót við þær sem frir eru, ásamt tengibyggingu á suðurausturhluta skólalóðarinnar. Tillagan hefur jafnframt í för með sér tilfærslu á leiksvæði. Uppdráttur í mkv. 1:150 dags. í febrúar 2021. Á fundi skipulagsráðs 1. febrúar 2021 var samþykkt með tilvísan í 44. mgr. 43. gr. skipulagslagar nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Vallargerðis 2, 4, 6, 8, 10, 12, 14, 16, 18 og Kópavogsbrautar 41, 43, 45, 47, 49, 51, 55, 57. Kynningartíma lauk 16. apríl 2021. Engar ábendingar eða athugasemdir bárust á kynningartímanum.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



41.6 - 2011188 - Mánalind 8. Breytt deiliskipulag.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Arnars Þórs Jónssonar arkitekts dags. 28. október 2020 fh. lóðarhafa Mánalindar 8 með ósk um breytingu á deiliskipulagi. Á lóðinni stendur 212,8 m2 steinsteypt einbýlishús, byggt 1999. Í breytingunni felst að reisa viðbyggingu á vesturhlið hússins, samtals 60,3 m2. Stækkunin á við um anddyri og bílskúr ásamt hluta af óútgröfnu rými á jarðhæð. Byggt verður yfir svalir og rýmið sem áður voru svalir verða hluti af stofu á efri hæð hússins. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:200 dags. 28. október 2020. Á fundi skipulagsráðs 16. nóvember 2020 var samþykkt með tilvísan í 2. gr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Mánalindar 6, 9, 10, 11, 12, 13, 15, 17, 19, Laxalindar 5, 7 og 9. Kynningartíma lauk 8. apríl 2021. Engar ábendingar eða athugasemdir bárust á kynningartímanum.

Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



41.7 - 2010120 - Gulaþing 23. Breytt deiliskipulag.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Einars Ólafssonar arkitekts, dags. 13. nóvember 2020 fh. lóðarhafa Gulaþings 23 þar sem óskað eftir breytingu á deiliskipulagi. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja einbýlishús á tveimur hæðum á lóðinni, heildarbyggingarmagn samtals 400 m2. Í framlögðu erindi er óskað eftir að breyta einbýlishúsi í parhús á tveimur hæðum með óbreyttu heildarbyggingarmagni þ.e. samtals 400 m2. Bílastæðum fjölgar úr þremur í fjögur. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:2000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 13. nóvember 2020. Á fundi skipulagsráðs 7. desember 2020 var samþykkt að auglýsa framlagða tillögu með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 22. desember 2020 var afgreiðsla skipulagsráðs staðfest. Kynningartíma lauk 2. apríl 2021. Engar ábendingar eða athugasemdir bárust á kynningartímanum.

Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



41.8 - 2101741 - Álfhólsvegur 53. Kynning á byggingarleyfi.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Birgis Teitssonar arkitekts dags. 16. desember 2020 fh. lóðarhafa Álfhólsvegar 53. Óskað er eftir rífa skúr sem stendur á lóðinni og reisa samliggjandi bílgeymslu og vinnustofu, samtals 69,8 m2, við lóðarmörk Álfhólsvegar 51 og Löngubrekku 15. Undirritað samþykki lóðarhafa Álfhólsvegar 51, Löngubrekku 15, 15a og 17 liggur fyrir. Uppdráttur í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 16. desember 2020. Á fundi skipulagsráðs 1. mars 2021 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Álfhólsvegar 51, Löngubrekku 15, 15a, og 17. Kynningartíma lauk 8. apríl 2021. Engar ábendingar eða athugasemdir bárust á kynningartíma.

Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



41.9 - 2101471 - Borgarholtsbraut 19. Kynning á byggingarleyfi.

Lagt fram að nýju erindi Hrólfs Karls Cela arkitekts dags. 16. desember 2020 fh. lóðarhafa Borgarholtsbrautar 19. Á lóðinni stendur steinsteypt 243,7 m2 íbúðar- og verslunarhús byggt 1952 auk bílgeymslu sem í dag er notuð sem lagerrými. Óskað er eftir að íbúð á efri hæð hússins verði breytt í veitingarými og sameinuð veitingastað/bakaríi á jarðhæð hússins. Eftir breytingu verður veitingarýmið 214,2 m2. Auk þess verður komið fyrir brunastiga frá svölum á suðurhlið hússins. Uppdráttur í mkv. 1:100 dags. 16. desember 2020. Á fundi skipulagsráðs 1. febrúar 2021 var afgreiðslu málsins frestað og vísað til umsagnar. Þá lagt fram breytt erindi dags. 12. febrúar 2021. Á fundi skipulagsráðs 15. febrúar 2021 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða breytingu fyrir lóðarhöfum Borgarholtsbrautar 17, 17a, 20-24, Melgerðis 2, 4, 6 og Urðarbrautar 9. Kynningartíma lauk 26. mars 2021. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma. Á fundi skipulagsráðs 29. mars 2021 var afgreiðslu frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 16. apríl 2021 auk yfirlýsing frá lóðarhöfum Borgarholtsbrautar 19 dags. 15. apríl 2021.

Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.


42

Leikskólanefnd - 128. fundur frá 15.04.2021

Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 11:16 og tók Einar Ö. Þorvarðarson sæti í hennar stað.

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.

43

Menntaráð - 77. fundur frá 20.04.2021

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.

44

Ungmennaráð - 23. fundur frá 21.04.2021

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

45

Velferðarráð - 83. fundur frá 26.04.2021

Fundargerð í 11 liðum.

Lagt fram.