Til baka í fundargerðir
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Péturs Hrafns Sigurðssonar um sérstakan íþróttastyrk til tekjulágra heimila í Kópavogi
Málsnúmer: 2101652
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3038. fundur
Lagt fram svar við fyrirspurn Péturs Hrafns Sigurðssonar um sértakan íþróttastyrk til tekjulágra heimila í Kópavogi.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar að nýju til ítarlegri greiningar.
02
Bæjarráð - 3033. fundur
Frá bæjarfulltrúa Pétri Hrafni Sigurðssyni, fyrirspurn þar sem óskað er eftir upplýsingum er varða sérstakan íþróttastyrk til tekjulágra heimila í Kópavogi.
1. Hversu margar fjölskyldur hafa sótt um og fengið sérstakan íþróttastyrk sem ætlaður er tekjulágum heimilum í Kópavogi?
2. Hversu margar fjölskyldur eiga rétt á slíkum bótum í Kópavogi?
3. Hvernig var kynningu á sérstökum íþróttastyrk háttað til þeirra sem rétt eiga á honum?
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs og stjórnsýslusviðs.