Bæjarráð - 3033. fundur
Fjarfundur - Microsoft Teams
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá lögfræðideild, lögð fram drög að reglum um auglýsingastyrki til stjórnmálaflokka, ásamt svari við fyrirspurn um auglýsingastyrki til stjórnmálaflokka á þessu kjörtímabili og því síðasta og upphæð þeirra, dags. 18. janúar.
Bæjarráð frestar erindinu.
Bókun:
"Óska eftir yfirliti yfir allar greiðslur á sama tímabili frá Kópavogsbæ til Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi og annarra stjórnmálaflokka, eða til annarra aðila vegna vöru eða þjónustu fyrir stjórnmálaflokka.
Óska jafnframt eftir upplýsingum um hvers vegna þessar greiðslur koma ekki fram í opna bókhaldi Kópavogsbæjar."
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Bókun:
"Undirrituð óskar eftir skýringum á ólíkum upphæðum til stjórnmálaflokka á tímabili fyrirspurnar."
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Fundarhlé hófst kl. 8:50 fundi fram haldið kl. 8:53.
Frá lögfræðideild, dags. 19. janúar, lögð fram umsögn um beiðni um endurupptöku máls vegna Hraunbrautar 14.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að hafna beiðni um endurupptöku með vísan til umsagnar lögfræðideildar.
Frá forstöðumanni UT deildar, dags. 25. janúar, lagðar fram niðurstöður örútboðs um kaup netbúnaðar þar sem lagt er til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Sensa.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Sensa.
Frá deildarstjóra launadeildar, dags. 21. janúar, lögð fram til samþykktar undanþágulisti vegna verkfalla 2021.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan verkfallslista.
05
Fyrirspurn Theódóru S. Þorsteinsdóttur varðandi heildaráætlun um viðhald og endurnýjun á götum og göngu- og hjólastígum á Kársnesinu
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 25. janúar, lagt fram svar við fyrirspurn úr bæjarráði varðandi heildaráætlun um viðhald og endurnýjun á götum og göngu- og hjólastígum í Kópvogi.
Bæjarráð frestar erindinu.
Frá sviðsstjóra menntasviðs og deildarstjóra leikskóladeildar, dags. 25. janúar, lögð fram tillaga um ráðningu í stöðu leikskólastjóra á leikskólanum Marbakka.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu að ráðningu Öldu Agnesar Sveinsdóttur í starf leikskólastjóra á leikskólanum Marbakka.
07
Beiðni um tilnefningu í starfshóp stjórnar SSH vegna verkefnis um stjórnsýslu byggðasamlaga
Frá SSH, dags. 20. janúar, lögð fram beiðni um tilnefningu í starfshóp stjórnar SSH vegna verkefnis um stjórnsýslu byggðasamlaga.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Margréti Friðriksdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur.
Frá SSH, dags. 20. janúar, lögð fram skýrsla um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu til kynningar og umræðu hjá aðildarsveitarfélögum.
Bæjarráð frestar erindinu.
09
Til umsagnar frumvarp til laga breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu, sandkola og hryggleysingja), 419. mál.
Frá atvinnuveganefnd Alþingis, dags. 22. janúar, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
10
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.), 418. mál.
Frá atvinnuveganefnd Alþingis, dags. 22. janúar, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
Fundargerð í 5 liðum
Lagt fram.
Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.
13.2 - 1512173 - Skemmtilegri leikskólalóðir.
Tillögur um framkvæmdir á leikskólalóðum fyrir árið 2021. Lagt fram til samþykktar.
Leikskólanefnd þakkar garðyrkjustjóra, Friðriki Baldurssyni fyrir góða kynningu á stöðu og endurmat leikskólalóðanna fyrri árin 2017-2020.
Leikskólanefnd samþykkir tillögu um forgangsröðun leikskólalóða til endurbóta árið 2021 fyrir sitt leyti og vísar tillögunni áfram til samþykktar bæjarráðs.
Bæjarráð staðfestir með fimm atkvæðum afgreiðslu leikskólanefndar.
Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.
17.11 - 2101507 - Útvíkkun félagslegrar heimaþjónustu
Tillaga að breytingu á þjónustu dags. 21.1.2021 lögð fram til afgreiðslu.
Velferðarráð fagnar framlagðri tillögu um aukinn sveigjanleika í félagslegri heimaþjónustu með áherslu á að sporna gegn einangrun.
Velferðarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti enda rúmast hún innan fjárhagsáætlunar.
Lagt fram.
18
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Péturs Hrafns Sigurðssonar um sérstakan íþróttastyrk til tekjulágra heimila í Kópavogi
Frá bæjarfulltrúa Pétri Hrafni Sigurðssyni, fyrirspurn þar sem óskað er eftir upplýsingum er varða sérstakan íþróttastyrk til tekjulágra heimila í Kópavogi.
1. Hversu margar fjölskyldur hafa sótt um og fengið sérstakan íþróttastyrk sem ætlaður er tekjulágum heimilum í Kópavogi?
2. Hversu margar fjölskyldur eiga rétt á slíkum bótum í Kópavogi?
3. Hvernig var kynningu á sérstökum íþróttastyrk háttað til þeirra sem rétt eiga á honum?
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs og stjórnsýslusviðs.
Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur um erindi er varðar landnotkun lóðarinnar að Fannborg 4, er bæjarráð tók fyrir á fundi sínum þann 17. apríl 2019.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar sviðsstjóra velferðarsviðs og umhverfissviðs.