Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vesturvör 44, Sky lagoon ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Málsnúmer: 2103213

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3040. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 9. mars, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 4. mars, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Sky Lagoon ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Vesturvör 44, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn.