Nýbýlavegur 22, American Style. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi
Málsnúmer: 2103781
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1236. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 6. apríl, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 18. mars, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Gleðiheima ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Nýbýlavegi 22, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
02
Bæjarráð - 3042. fundur

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.