Útboð - Skólaakstur og hópbifreiðaþjónusta fyrir Kópavogsbæ 2021 - 2024
Málsnúmer: 2104648
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3050. fundur
Frá rekstrarstjóra menntasviðs, dags. 14.06.2021, lagðar fram niðurstöður útboðs á skólaakstri og hópbifreiðarþjónustu fyrir Kópavogsbæ 2021-2024. Lagt er til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda, Teit Jónasson ehf. vegna innkaupahluta 1, en leitað verði samninga við alla aðila sem gerðu tilboð í innkaupahluta 2, enda öll tilboð metin gild, en tilboðsverð bjóðenda ræður í hvaða röð raðað verði í forgangslista rammasamningshafa.
Bæjarráð samþykkir með 5 atkvæðum að ganga til samninga við lægstbjóðanda Teit Jónasson ehf. vegna innkaupahluta 1 og að leitað verði samninga við alla aðila sem gerðu tilboð í innkaupahluta 2.
02
Bæjarráð - 3044. fundur
Frá rekstrarstjóra menntasviðs, dags. 26.04.2021, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út í opnu útboði skólaakstur og rammasamning um hópbifreiðarþjónustu fyrir Kópavogsbæ.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild til að bjóða út í opnu útboði skólaakstur og rammasamning um hópbifreiðarþjónustu fyrir Kópavogsbæ.