Bókun 535. fundar stjórnar SSH - samstarfssamningur skíðasvæði
Málsnúmer: 2201594
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1251. fundur
Frá stjórn SSH, dags. 20. janúar 2022, lögð fram drög að samstarfssamningi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um rekstur skíðasvæða. Óskað er eftir efnislegri umræðu, afgreiðslu og staðfestingu af hálfu sveitarfélagsins.
Samþykkt með 9 atkvæðum. Bæjarfulltrúarnir Einar Örn Þorvarðarson og Theodóra Þorsteinsdóttir sitja hjá og bóka:
"Undirrituð telja að bjóða eigi út skíðasvæðin á höfuðborgarsvæðinu."
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
Einar Örn Þorvarðarsson
02
Bæjarráð - 3075. fundur
Frá stjórn SSH, dags. 20. janúar 2022, lögð fram drög að samstarfssamningi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um rekstur skíðasvæða. Óskað er eftir efnislegri umræðu, afgreiðslu og staðfestingu af hálfu sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.