Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga bæjarfulltrúa Theódóru S Þorsteinsdóttur um að hafinn verði undirbúningur á deiliskipulagi á nýrri íbúabyggð í Vatnsendahlíð

Málsnúmer: 2201762

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3075. fundur

Undirrituð leggur til að hafinn verði undirbúningur á deiliskipulagi á nýrri íbúðabyggð í Vatnsendahlíð. Fjöldi íbúða skal taka mið af því að þar rísi nýtt skólahverfi á þessu glæsilegasta byggingarlandi á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla þjónustu með Elliðavatn og Heiðmörkina í bakgarðinum.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.