Til baka í fundargerðir
Umsókn Kennarafélags ehf um rekstur leikskólans Aðalþings
Málsnúmer: 2204052
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3088. fundur
Frá bæjarlögmanni dags. 3. maí, lagður fram til kynningar samningur menntasviðs við Kennarafélagið ehf.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 3087. fundur
Frá menntasviði, lögð fram drög að rekstrarsamnningi Kópavogsbæjar og Kennarafélagsins ehf. um rekstur leikskólans við Aðalþing. Óskað er eftir að bæjarráð samþykki umsókn Kennarafélagsins ehf. um leyfi til reksturs leikskólans Aðalþings.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umsókn Kennarafélagsins ehf. og veitir leyfi til reksturs leikskólans Aðalþings.
03
Leikskólanefnd - 140. fundur
Kennaarafélagið ehf sækir um rekstur leikskólans Aðalþings
Leikskólanefnd samþykkir beiðni Kennarafélagsins ehf um rekstur leikskólans Aðalþings með fyrirvara um að tilskylin gögn sem uppfylla skilyrði fylgi umsókninni.