Bæjarráð - 3087. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - aðalmaðurBoðaði forföllBirkir Jón Jónsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá lögfræðideild, dags. 25 apríl 2022, lögð fram niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi úrskurð í máli nr.172/2021.
Lagt fram.
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 19. apríl, lögð fram niðurstaða útboðs lausra kennslustofa. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 20.04.2022.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við Terra Einingar ehf. um leigu og uppsetningu færanlegra leikskólarýma.
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 25. apríl 2022, lögð fram beiðni til bæjarráðs um að ganga til samninga við Sérverk ehf. um hönnun og framkvæmda á nýjum leikskóla við Vallartröð 12a.
Bæjarráð samþykki með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við Sérverk ehf.
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 25. apríl 2022, lögð fram tilboð er bárust í verkið Hörðuvallarskóli - innrétting neðri hæð Vallarkór 14. Lagt er til við bæjarráð að gengið verði til samninga við Sérverk ehf.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild.
Frá rekstrarstjóra mennntasviðs, dags. 26. apríl 2022, lögð fram beiðni til bæjarráðs þar sem lagr er til að Kópavogsbær greiði framlög í samræmi við meðfylgjandi fylgiskjal til sjálfstætt starfandi leikskóla (SSL) með samning við Kópavogsbæ vegna leikskóladvalar barna með lögheimili í Kópavogi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að greiða framlög til sjálfstætt starfandi leikskóla í Kópavogi í samræmi við fylgiskjal menntaviðs.
Frá menntasviði, lögð fram drög að rekstrarsamnningi Kópavogsbæjar og Kennarafélagsins ehf. um rekstur leikskólans við Aðalþing. Óskað er eftir að bæjarráð samþykki umsókn Kennarafélagsins ehf. um leyfi til reksturs leikskólans Aðalþings.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umsókn Kennarafélagsins ehf. og veitir leyfi til reksturs leikskólans Aðalþings.
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 26. apríl 2022, lagt fram yfirlit varðandi endurnýjun malbiks á götum árið 2022.
Lagt fram.
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 26. apríl 2022, lagðar fram niðurstöður útboðs - malbiksviðgerðir í Kópavogi 2022-2023. Lagt er til við bæjarráð að gengið verið til samninga við Colas Ísland hf.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita heimild til að gengið verði til samninga við Colas Ísland hf. vegna malbiksviðgerða 2022-2023.
Frá Almannavörnum, dags. 25. apríl 2022, lagt fram erindi þar sem sveitarfélagið er hvatt til að taka þátt í þemaviku Almannavarna.
Lagt fram.
Frá hreyfingunni Vinir Kópavogs, lögð fram beiðni um styrk vegna framboðs til sveitastjórnarkosninga.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar til bæjarritara.
Frá MAST, dags. 26. apríl 2022, lagðar fram upplýsingar vegna greingar á skæðri fuglaflensu á Íslandi í apríl 2022.
Lagt fram.
12
Styrkbeiðni vegna gerð fræðsluefnis um mikilvægi tengsla barna við báða foreldra eftir skilnað
Frá Félaginu Foreldrajafnrétti, dags. 25. apríl 2022, lögð fram styrkbeiðni til gerðar fræðsluefnis um mikilvægi tengsla barna við báða foreldra eftir skilnað.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra velferðarsviðs.
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
18
Fundargerð 3. fundar Heilbrigðisnefndar Garðarbæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes frá 25.04.2022
Lögð fram fundargerð 3. fundar Heilbrigðisnefndar Garðarbæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes frá 25.04.2022.
Lagt fram.
19
Bæjarfulltrúi Theódóra S. Þorsteinsdóttir óskar eftir upplýsingum um hvernig staðið hefur verið að móttöku flóttamanna frá Úkraínu.
Bæjarfulltrúi Theódóra S. Þorsteinsdóttir óskar eftir upplýsingum um hvernig staðið hefur verið að móttöku flóttamanna frá Úkraínu. Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum 07.04.2022.
Fundarhlé hófst kl. 10:21, fundi fram haldið kl. 10:26
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela sviðsstjóra velferðarsviðs að leita samninga við ríkisvaldið um móttöku flóttamanna frá Úkraínu.
20
Tillaga bæjarfulltrúa Theódóru S Þorsteinsdóttur að hefja viðræður við Mennta- og barnamálaráðuneytið, MK og Breiðablik um að skoða kosti þess að flytja MK í Smárann
Frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur, dags. 26. apríl 2022, lögð fram tillaga um Kópavogsbær hefji viðræður við Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntaskólann í Kópavogi og Breiðablik um að skoða kosti þess að flytja Menntaskólann í Kópavogi í Smárann. Tillögunni fylgir greinargerð.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til frekari rýni bæjarstjóra.