Selbrekka 20, SJF ehf . Endurnýjun á umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi
Málsnúmer: 22052043
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3093. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 18.07.2022, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 23.05.2022, þar sem óskað er umsagnar um umsókn SJF ehf., kt. 481215-0990, um endurnýjað rekstarleyfi fyrir gististað í sveitarfélaginu í flokki II. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að veita umsókninni jákvæða umsögn með vísan til bréfs lögfræðideildar.
Helga Jónsdóttir greiðir atkvæði á móti.
02
Bæjarráð - 3092. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 21.06.2022, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 23.05.2022, þar sem óskað er umsagnar um umsókn SJF ehf., kt. 481215-0990, um endurnýjað rekstarleyfi fyrir gististað í sveitarfélaginum í flokki II. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu aftur til umsagnar lögfræðideildar.