Bæjarráð - 3092. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaðurBoðaði forföllAndri Steinn Hilmarsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Anna Kristín Guðmundsdóttir - lögfræðingur
Ritari
- Anna Kristín Guðmundsdóttir
Dagskrá fundar
Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir jan.-apríl 2022.
Kynnt.
Frá sviðsstjóra velferðarsviðs, lagður fram viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2022.
Frá sviðsstjórum umhverfissviðs og menntasviðs, lagður fram viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2022.
Bæjarráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum framlagða viðauka.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 4. júlí, lagt fram minnisblað vegna göngu- og hjólastíga meðfram Lindarvegi.
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 7. júní 2022, lagðar fram niðurstöður útboðs á stígagerð meðfram Lindavegi á milli Fífuhvammsvegar og Arnarnesvegar. Lagt er til við bæjarráð að tilboði Urð og grjót ehf. verði tekið og gerður verði verksamningur við fyrirtækið um verkið.
Niðurstaða Bæjarráð - 3091
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bókun bæjarráðs:
"Bæjarráð ítrekar mikilvægi þess að bæjarráðsfulltrúar hafi aðgang að öllum gögnum mála tímanlega fyrir afgreiðslu þeirra. Útboðsgögn höfðu í þessu tilfelli ekki borist með útsendu fundarboði."
Niðurstaða
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa málinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til nánari skoðunar.
Bókun bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn vill ítreka að heimild til útboðs var ekki borin upp í bæjarráði og þar af leiðandi sáu bæjarráðsfulltrúar ekki gögnin fyrr en að útboðsferli loknu. Þá var ekki tekið mið af hönnunarleiðbeiningum sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins og Vegagerðarinnar fyrir hjólreiðar. Umferðaröryggi á alltaf að vera ráðandi þáttur við skipulag og hönnun hjólaleiða."
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfissvið dags. 4. júlí 2022. Sviðsstjóri mætti og gerði grein fyrir minnisblaði sínu.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur að ganga til samninga við Urð og grjót ehf. um gerð hjóla- og göngustíga meðfram Lindarvegi á milli Fífuhvammsvegar og Arnarnesvegar.
Frá lögfræðideild, dags. 21.06.2022, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 19.05.2022, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Dýrheima sf., kt. 610295-2749, leyfi til reksturs í sveitarfélaginum í flokki II. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.
Frá lögfræðideild, dags. 21.06.2022, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 23.05.2022, þar sem óskað er umsagnar um umsókn SJF ehf., kt. 481215-0990, um endurnýjað rekstarleyfi fyrir gististað í sveitarfélaginum í flokki II. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu aftur til umsagnar lögfræðideildar.
06
Hlíðasmári 14 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 20.06.2021, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar styrktarfélags krabbameinssjúkra barna um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 486.000,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 486.000.-
07
Sandskeiði 1. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 22.06.2022, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Svifflugfélag Íslands, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr.1.134.000,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 1.134.000.-
08
Skíðaskáli Víkings og ÍR í Bláfjöllum - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 22.06.2021, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Skíðadeildar Víkings og ÍR, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 2.124.060,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 2.124.060.-
09
Ögurhvarf 6 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 21.06.2022, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar ÁS styrktarfélags um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 8.573.040,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 8.573.040.-
10
Hamraborg 1-3, Kópavogi. Númer fasteignar: 0101 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 21.06.2022, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar SOS barnaþorps, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr.634.464,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 634.464.-
11
Lækjarbotnar/skíðaskáli 117015 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 20.06.2022, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Glímufélagsins Ármanns, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr.1.508.976,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 1.508.976.-
12
Víkurhvarf 1. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 20.06.2022, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar RM Heklu um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr.3.334.781,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 3.334.781,-
13
Rjúpnasalir 1. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 24.06.2022, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar frá Lionsklúbbnum Muninn og Ýr, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr.176.760,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 176.760.-
14
Hamraborg 10 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 20.06.2022, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Soroptimistasamband Íslands, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr.167.760,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr.167.760.-
Frá lögfræðideild, dags. 28.06.22, lögð fram beiðni um framsal lóðarinnar Nýbýlaveg 1 frá Olís ehf. til dótturfélags í eigu Haga, BBL 178 ehf.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til úrvinnslu bæjarstjóra.
Frá lögfræðideild, dags. 27.06.22, lögð fram beiðni til bæjarráðs um samþykki til að framselja lóðirnar Silfursmára 1-3, 5-7 og 12.
Bæjarráð samþykkir framsal lóðarinnar með fimm atkvæðum.
Lögð fram til kynningar kæra til kærunefndar útboðsmála vegna útboðs á umferðarljósabúnaði við Smárahvammsveg og Fífuhvammsveg, ásamt greinargerð lögfræðideildar vegna málsins.
Lagt fram.
Afgreiðslu var frestað á fundi velferðarráðs þann 7.3.2022 og frekari upplýsinga óskað.
Greinargerð deildarstjóra dags. 19.5.2022 ásamt þar til greindum fylgiskjölum lögð fram til afgreiðslu.
Niðurstaða Velferðarráð - 103
Velferðarráð samþykkir tillögu um hækkun jafnaðartaxta fyrir sitt leyti.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Niðurstaða
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi hækkun jafnaðartaxta NPA samninga, enda rúmist fjárheimildir innan ramma velferðarsviðs:
Jafnaðartaxti sólarhringssamninga, frá 1. janúar 2022 til 30. apríl 2022 = 5.963 kr.
Jafnaðartaxti sólarhringssamninga, frá 1. maí 2022 til 31. desember 2022 = 6.717 kr.
Jafnaðartaxti sólarhringssamninga með hvíldarvöktum, frá 1. janúar 2022 til 30. apríl 2022 = 5.441 kr.
Jafnaðartaxti sólarhringssamninga með hvíldarvöktum, frá 1. maí 2022 til 31. desember 2022 = 6.000 kr.
Jafnaðartaxti NPA samninga án næturvakta, frá 1. janúar 2022 til 30. apríl 2022 = 5.622 kr.
Jafnaðartaxti NPA samninga án næturvakta, frá 1. maí 2022 til 31. desember 2022 = 6.157 kr.
Frá HSSK, dags. 14.06.2022, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir aðkomu Kópavogsbæjar að nýju húsnæði að Tónahvarfi 8.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.
Frá Sjálfsbjörg, félagi hreyfihamlaðra, dags. 21.06.2022, lögð fram umsókn um styrk að upphæð kr. 100.000,-
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til bæjarritara til afgreiðslu.
Frá EFS, dags. 22.06.2022, lagt erindi varðandi ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2021.
Lagt fram.
22
Erindi frá Stúdentaráði Háskóla Íslands varðandi málefni stúdenta sem heyra undir sveitarstjórnarstigið
Frá Stúdentaráði Háskóla Íslands, dags. 28.06.2022, lagt fram erindi frá málefni stúdenta sem heyra undir sveitarstjórnarstigið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fimm liðuum.
Lagt fram.
Lagt fram.
25.3 - 2102649 - Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna
Minnisblað sviðsstjóra velferðar- og menntasviðs dags. 22.6.2022, ásamt þar til greindum fylgiskjölum, lagt fram.
Menntaráð samþykkir fyrir sitt leiti að sviðstjórar mennta- og velferðasviðs fái umboð til að ráðstafa framlagi Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu í þágu farsældar barna. Menntaráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu menntaráðs með fimm atkvæðum.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
26.6 - 2102649 - Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna
Minnisblað sviðsstjóra velferðar- og menntasviðs dags. 22.6.2022, ásamt þar til greindum fylgiskjölum, lagt fram til afgreiðslu.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að sviðsstjórar velferðar- og menntasviðs fái umboð til að ráðstafa framlagi Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu í þágu farsældar barna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu velferðarráðs með fimm atkvæðum.
Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
Lagt fram.
28.10 - 22061308 - Álfhólsvegur 15, stækkun lóðar.
Lagt fram erindi lóðarhafa dags. 14. júní 2022, þar sem óskað er eftir því að heimiluð verði stækkun lóðarinnar til vesturs um rúma tvo metra.
Greinargerð ásamt skýringarmyndum dags. 14. júní 2022.
Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 5 atkvæðum.
28.7 - 2204337 - Borgarholtsbraut 13A. Breytt aðkoma.
Lagt fram á ný erindi lóðarhafa dags. 6. apríl 2022, þar sem óskað er eftir því að merking bílastæðis við Borgarholtsbraut og innkeyrsla að lóðinni verði heimiluð. Skv. lóðarleigusamningi Borgarholtsbraut 13A dags. 17. apríl 1972 er gert ráð fyrir bílastæði á norðvestur- horni lóðarinnar við Borgarholtsbraut.
Á fundi skipulagsráðs 16. maí 2022 var afgreiðslu frestað. Vísað til úrvinnslu umhverfissviðs.
Þá lögð fram umsögn umhverfissviðs dags. 24. júní 2022.
Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með fimm atkvæðum.
28.8 - 2111369 - Melgerði 11. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Lagt fram að nýju erindi Hauks Ásgeirssonar byggingarverkfræðings dags. 7. október 2021 f.h. lóðarhafa Melgerðis 11 þar sem sótt er um breytingar á lóðinni. Á lóðinni er steinsteypt 160 m2 einbýlishús á tveimur hæðum byggt 1954 auk 40,2 m² bílgeymslu, byggðri 1972. Í erindinu er óskað eftir reisa viðbyggingu með einni íbúð á tveimur hæðum við vesturhlið íbúðarhússins alls brúttó 139,8 m² að stærð. Jafnframt er bílastæðum á lóðinni fjölgað úr tveimur í fjögur. Byggingarmagn á lóðinni hækkar úr 200,2 m² í 340 m² við breytinguna og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,26 í 0,46. Fjöldi íbúða eykst úr einni í tvær á lóðinni.
Greinargerð og uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 7. október 2021.
Á fundi skipulagsráðs 17. janúar 2022 var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Melgerðis 9, 10, 12, 13, 14, Vallargerðis 10, 12 og 14.
Kynningartíma lauk 3. júní 2022, athugasemdir bárust.
Á fundi skipulagsráðs 20. júní 2022 var afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 1. júlí 2022.
Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Theódóra S Þorsteinsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með fjórum atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur.
28.9 - 22033170 - Kópavogsbraut 19. Urðarhóll, leikskóli. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs dags. 29. apríl 2022 breytt 30. maí 2022 að breyttu deiliskipulagi Kópavogstúns, samþykkt í bæjarstjórn 8. nóvember 2005 og birt í B- deild Stjórnartíðinda 7. mars 2006.
Í breytingunni felst að lóðin Kópavogsbraut 19 verður breytt og stækkuð til suðurs, vesturs og austurs. Lóðarstærð breytist og verður 6.130 m2 í stað 950 m2. Auk þess verður stofnuð ný lóð 315 m2 að stærð sem tilheyrir Kópavogsbraut 19, innan svæðis sem skilgreint er sem "frestað svæði" í gildandi deiliskipulagi og fær sú lóð staðfangið Kópavogsbraut 19b.
Á umræddri lóð nr. 19b verður komið fyrir byggingarreit á einni hæð fyrir færanlega kennslustofu. Svæðið er skilgreint fyrir samfélagsþjónustu í Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040. Hámarks hæð byggingarreitar er áætluð 2.8 - 3 metrar og áætluð stærð byggingarreits er um 135 m².
Leiksvæði barna mun verða á núverandi leikskólalóð en girðingu verður komið upp umhverfis færanlegu kennslustofuna. Lagður verður upphitaður stígur milli færanlegu kennslustofunnar og leikskólans Urðarhóls. Staðsetning færanlegu kennslustofunnar er tímabundin.
Uppdrættir í mkv. 1:2000, 1:100 og 1:250 dags. 29. apríl 2022, breytt 30. maí 2022.
Á fundi skipulagsráðs 30. maí 2022 var samþykkt með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Kópavogsbarðs 5, 7, 9, 11, 13, 15, 17 og 19, Kópavogsbrautar 5A, 5B, 5C, 9, 11 og 17.
Kynningartíma lauk 1. júní 2022, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 5 atkvæðum.
Vegna sumarleyfis bæjarstjórnar mun bæjarráð funda í umboði bæjarstjórnar 7. júlí, 21. júlí og 4. ágúst.
Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi er 23. ágúst nk.
Vegna sumarleyfis bæjarstjórnar mun bæjarráð funda í umboði bæjarstjórnar 7. júlí, 21. júlí og 4. ágúst.
Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi er 23. ágúst nk.
Frá Waldorfskóla, dags. 29.06.2022, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir því að deiliskipulag verði unnið fyrir Lækjabotna.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs.
31
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um kaup Kópavogsbæjar á veitingum á meirihlutafundum
Frá bæjarfulltúa Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur, dags. 28.06.2022, lögð fram fyrirspurn um kaup Kópavogsbæjar á veitingum á meirihlutafundum.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar bæjarritara.