Beiðni um kaup á hjóli fyrir íbúa hjúkrunarheimilisins í Boðaþingi
Málsnúmer: 2208842
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3101. fundur
Frá sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 28.09.2022, lögð fram umsögn um beiðni um kaup á hjóli fyrir íbúa hjúkrunarheimilisins að Boðaþingi.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarritara.
Fundarhlé hófst kl. 10:06, fundi fram haldið kl. 10:16
Bókun:
"Undirrituð telur að Kópavogsbær eigi að styrkja kaup á hjóli um 50% líkt og áður hefur verið gert. Jafnframt að stígar verði lagfærðir ef þörf er á og að Kópavogsbær styrkja kaup á hlífðarfatnaði fyrir notendur. Verkefnið er mikilvægt og mjög jákvætt lýðheilsuverkefni unnið af sjálfboðaliðum eða aðstandendum íbúa. Verkefnið styður jafnframt vel við yfirmarkmið um jöfnuð til heilsu hjá öllum aldurshópum með sérstöku tilliti til viðkvæmra hópa, sem og meginmarkmið um að skapa umhverfi sem hvetur til aukinnar hreyfingar og útivistar."
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bókun:
"Tek undir bókun Theódóru S. Þorsteinsdóttur."
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Bókun:
"Undirrituð eru mjög jákvæð fyrir verkefninu. Fjárfesting í hjólum mun auka lífsgæði íbúa í Boðaþingi líkt og hefur verið raunin í Sunnuhlíð. Leggjum við því til að veitt verði sama fjárhæð og áður til hjólakaupa að teknu tilliti til verðlagsþróunar."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri Steinn Hilmarsson
02
Bæjarstjórn - 1262. fundur
Frá Hjólað óháð aldri, dags. 30.08.2022, lögð fram tillaga til bæjarráðs um að kaupa hjól fyrir íbúa hjúkrunarheimilisins Boðaþingi.
03
Bæjarráð - 3098. fundur
Frá Hjólað óháð aldri, dags. 30.08.2022, lögð fram tillaga til bæjarráðs um að kaupa hjól fyrir íbúa hjúkrunarheimilisins Boðaþingi.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar velferðarsviðs.