Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Flutningur Sorpu af Dalvegi 1

Málsnúmer: 2209119

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3244. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 27.01.2026, lögð fram tillaga að framlengingu á uppsögn leigusamnings Sorpu Dalvegi til 31.12.2026.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum framlagða tillögu um framlengingu þjónustu Sorpu á Dalvegi 1 til 31.12.2026.

02

Bæjarráð - 3221. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 15.07.2025, lögð fram tillaga að framlengingu á uppsögn leigusamnings Sorpu Dalvegi.

Bókun:

,,Fulltrúar Pírata, Samfylkingar, Viðreisnar og Vina Kópavogs í bæjarráði Kópavogs fagna því að bæjarstjórinn hafi séð ljósið og ákveðið að fresta lokun endurvinnslustöðvar Sorpu við Dalveg sem áætluð var 1. september 2025. Frestunin er í samræmi við tillögu sömu fulltrúa sem lögð var fram í bæjarráði 13. febrúar s.l. og var hafnað af fulltrúum meirihlutans þann 20. febrúar s.l."

Hlé var gert á fundi kl. 9:03. Fundi framhaldið kl. 9:15

,,Framtíðarsýn meirihlutans fyrir reitinn við Dalveg er skýr: Þar verður byggð upp þjónusta sem fellur betur að svæðinu og mætir þörfum Kópavogsbúa til framtíðar. Það breytist ekki þótt tímabundinn frestur sé veittur.

Hugmyndasamkeppni um þróun á reitnum lauk í lok júní. Í ljósi þess að tímalína verkefnisins liggur nú fyrir teljum við rétt að veita eðlilegt svigrúm þar sem það kemur ekki til með að hafa áhrif á þróun og undirbúningsvinnu á svæðinu."


Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu.